Fara í efni

Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Seyðisfirði

Málsnúmer 202601161

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 65. fundur - 05.02.2026

HEF veitur, nýr starfsmaður: Skúli Vignisson hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri, með umsjón yfir kyndistöðinni á Seyðisfirði. Mun hann einnig sinna fleiri verkefnum tengdum framkvæmdum í Múlaþingi. Skúli mun hefja störf í mars og vera með starfstöð hér á Seyðisfirði.

Menningarstyrkir Múlaþings: Nýlega fór fram fyrri úthlutun á menningarstyrkjum Múlaþings 2026. Seinni úthlutun verður auglýst í ágúst. Eftirtalin verkefni með tengsl við Seyðisfjörð og hlutu styrk að þessu sinni eru:
Apolline Alice Penelopa Barra: Fiskisúpa-Ljósmyndasósa, röð ljósmyndaviðburða. Úthlutun: 350.000 kr.
Bláa kirkjan: Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar 2026. Úthlutun: 350.000 kr.
Bókasafn Múlaþings: Kveikja - sögur og sköpun, skapandi viðburðaröð fyrir börn á öllum bókasöfnum Múlaþings. Úthlutun: 400.000 kr.
Lasse Høgenhof Christensen: The Narrative Collection - On Air, útvarpsþættir. Úthlutun: 350.000 kr.
Monika Frycova: KIOSK 108: Sumardagskrá 2026. Úthlutun: 250.000 kr.
Ra Laura Elisabeth Tack: Listamannadvöl og viðburðaröð fyrir hinsegin fólk á Austurlandi. Úthlutun: 350.000 kr.
Sesselja Hlín Jónasardóttir: 100 ár frá fæðingu Garðars Eymundssonar, minningarsýning. Úthlutun: 240.000 kr.
Skaftfell: Prentnámskeið 2026 í Prentverki Seyðisfjarðar. Úthlutun: 400.000 kr.
Ströndin atelier. Ljósmyndadagar á Seyðisfirði 2026 Staðarviska. Úthlutun: 420.000 kr.
Theresa Mraia Rivarola: WHAT HOME MEANS TO US collective lab, sögur innflytjendakvenna. Úthlutun: 400.000 kr.
Tækniminjasafn Austurlands: Þróun stuttra leikþátta um seyðfirskar afturgöngur. Úthlutun: 350.000 kr.

Framtíðin, félag eldri borgara: Félag eldri borgara hafa nú flutt í nýtt húsnæði sem staðsett er á Lækjargötunni og eru í óða önn að koma sér vel fyrir. Starfsemin hófst formlega 20.janúar sl. með fínu lummukaffi sem rann ljúflega niður m.a. hjá fulltrúa sveitarstjóra og er hér með þakkað kærlega fyrir.

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 67. fundur - 10.04.2026

Skólinn í útboð: Nú hillir loks undir að hægt verði að setja byggingu nýs grunnskóla á Seyðisfirði í útboð. Áætlað er að hönnun og útboðsgögn klárist nú í apríl og auglýsing fari svo í loftið snemma í sumar.

Hafnargata 44. Bæjarskrifstofan: Ákveðið hefur verið að framtíðarstaðsetning bæjarskrifstofu Seyðisfjarðar og bókasafns verði á efri hæð Herðubreiðar. Hönnun komin á fullt skrið. Vegna undirbúnings fyrir flutning bæjarskrifstofunnar á nýjan stað í bænum mun starfsemi skrifstofunnar flytja tímabundið í annað húsnæði í sumar. Ekki er komin nákvæm tímasetning á flutninginn en vinnsla í fullum gangi.

Höfnin: Landtengingin er klár hafnarinnar megin, Norræna að verða klár þannig að stefnt er að hún geti tengst í lok apríl. Verið er að klára nýtt tollaport sem ætlað er fyrir Smyril Line og verið að fara í að laga umhverfi Angróbryggjunnar þar sem flotbryggjan verður færð þangað. Búið er að skipta um öll ljós í ferjuhúsinu og setja LED í allt, sem mun spara talsvert í rafmagnskostnaði.

Herðubreið: Verið er að skipta út bíóstólum í bíósal Herðubreiðar. Góður gangur er á verkefninu og er áætlað að hægt verði að vera með fyrstu bíósýningu í nýju stólunum í byrjun maí. Þá vonandi fer vel um stóra sem litla rassa og verður nóg pláss fyrir hávaxna sem lágvaxna.

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 68. fundur - 08.05.2026

Fulltrúi sveitarstjóra fór yfir ýmis verkefni og stöðu mála.

Komur skemmtiferðaskipa: Fyrsta skemmtiferðaskipið kom 20.apríl sl með 2.000 farþega. Einungis fjórar komur skemmtiferðaskipa verða í maí með ca. 2500. farþega samanlagt.

Heildarfjöldi skemmtiferðaskipa í Seyðisfjarðarhöfn á árinu 2026 verða eins og staðan er í dag 86 komur, með 107.100 farþega plús 45.000 manns í áhöfn. Búið er að hækka þak fjölda farþega per skip úr 3.500 í 4.500 manns.

Baugur Bjólfs: Gaman að segja frá því að 29.milljónir króna fengust úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í uppbyggingu á bílastæði og gönguleið að Baugi Bjólfs.

Íbúafundur heimastjórnar: Góð mæting var á íbúafundinn sem haldinn var 30.apríl sl. í Herðubreið. Sveitarstjórinn, Dagmar Ýr Stefánsdóttir fór yfir stöðu mála og sagði m.a. frá heimsókn hóps á vegum ríkisstjórnarinnar sem er samansettur af embættismönnum frá fimm ráðuneytum sem hefur það hlutverk að aðstoða atvinnuhóp á vegum byggðaráðs sveitarfélagsins í að leita tækifæra fyrir ný atvinnutækifæri á Seyðisfirði. Hópurinn var í heimsókn á Seyðisfirði þennan dag og eftir kynningu sveitastjóra tók Karl Guðmundsson úr forsætisráðuneytinu til máls og sagði frá upplifun hópsins af heimsókninni.

Hugrún Hjálmarsdóttir fór yfir stöðu verkefna á umhverfis- og framkvæmdasviðinu þar sem heilmargt er í gangi. Fram kom að ný skólabygging er að fara í útboð, verklok áætluð sumarið 2028. Göngustígur að Gufufossi verður malbikaður í sumar. Snjóflóðavarnagarðar að klárast og í kjölfarið verður farið í heilmikla tiltekt og frágang sem inniheldur m.a. stíga, skilti og frágangi á fornminjum. Flutningur á Wathneshúsi/bæjaskrifstofu er áætlaður í haust, grenndarkynning stendur yfir og líkur 11. maí og áætlað er að bjóða sökkla og kjallara út núna í maí. Að lokum má nefna að gamli skóli fær smá upplyftingu í sumar.

Heimastjórn Þakkar íbúum, starfsmönnum og kjörnum fulltrúum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf á kjörtímabilinu og óskar næstu heimastjórn velfarnaðar í starfi.
Getum við bætt efni þessarar síðu?