Fara í efni

Bókasafn Múlaþings á Seyðisfirði, aðstaða

Málsnúmer 202601142

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 178. fundur - 03.02.2026

Fyrir liggur minnisblað um bókasafnið á Seyðisfirði, en flytja þarf það á þessu ári úr því húsnæði þar sem safnið er núna.
Byggðaráð Múlaþings óskar eftir umsögn frá heimastjórn Seyðisfjarðar varðandi framtíðarstaðsetningu bókasafnsins á Seyðisfirði.

Málið áfram í vinnslu.

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 65. fundur - 05.02.2026

Fyrir liggur minnisblað um bókasafnið, en flytja þarf það á þessu ári. Á fundi byggðaráðs 3.feb.sl. var eftirfarandi bókun gerð:
"Byggðaráð Múlaþings óskar eftir umsögn frá heimastjórn Seyðisfjarðar varðandi framtíðarstaðsetningu bókasafnsins á Seyðisfirði"
Hugrún Hjálmarsdóttir sviðstjóri framkvæmda og Elsa Guðný Björgvinsdóttir deildarstjóri menningarmála sitja fundinn undir þessum lið.
Unnið verður áfram að málinu og það tekið fyrir að nýju.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 176. fundur - 02.03.2026

Verkefnastjóri framkvæmdamála kynnir teikningu og fer yfir stöðu verkefnisins. Fyrir liggur teikning af frumtillögum fyrir húsnæði Bókasafns Múlaþings á Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar málinu til byggðarráðs til umræðu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur málið aftur fyrir að nýju, að lokinni umræðu hjá byggðarráði.

Samþykkt samhljóða.

Byggðaráð Múlaþings - 183. fundur - 17.03.2026

Fyrir byggðaráði liggur teikning af frumtillögum fyrir húsnæði Bókasafns Múlaþings á Seyðisfirði.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar því til byggðarráðs að taka umræðu um framlagða teikningu. Að lokinni umræðu hjá byggðarráði mun umhverfis- og framkvæmdaráð taka málið fyrir að nýju.
Á fundinn undir þessum lið mætti Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að Bókasafn Múlaþings á Seyðisfirði verði flutt úr Seyðisfjarðarskóla á efri hæð Herðubreiðar. Byggðaráð samþykkir einnig að skipaður verði starfshópur starfsfólks skrifstofunnar á Seyðisfirði, bókasafnsins og umhverfissviðs, ásamt sviðsstjórum viðkomandi málaflokka, til að skipuleggja og skilgreina rými bókasafnsins í Herðubreið.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 67. fundur - 10.04.2026

Til umræðu var flutningur á bókasafni Seyðisfjarðar. Elsa Guðný Björgvinsdóttir deildarstjóri menningarmála fór yfir stöðu mála. Málið var áður á dagskrá heimastjórnar 5.febrúar sl.
Málið áfram í vinnslu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 187. fundur - 29.06.2026

Sviðsstjóri framkvæmda kynnti fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði teikningar af efri hæð á Herðubreið, þangað sem bæjarskrifstofur Múlaþings á Seyðisfirði sem og bókasafn Seyðisfjarðar munu flytjast.
Lagt fram til kynningar.

Fulltrúar V-lista (ÁMS og GB) og L-lista (HRE) leggja fram eftirfarandi bókun:
Eftir að ráðið óskaði eftir að þessi liður kæmi inn á dagskrá fundarins til kynningar og ekki lágu fyrir gögn fyrir fundinn, teljum við að gögn er varða þessa framkvæmd hefðu þurft að koma fyrr inn á borð ráðsins og heimastjórnar Seyðisfjarðar, enda hafa breytingar af þessu tagi mikil og mótandi áhrif á vinnuumhverfi og aðstöðu í bæjarkjarnanum.
Við munum óska þess að þetta verði tekið upp af Byggðaráði.

Byggðaráð Múlaþings - 193. fundur - 07.07.2026

Fyrir liggja teikningar og kostnaðaráætlun vegna flutnings á skrifstofu Múlaþings á Seyðisfirði og bókasafni Seyðisfjarðar á efri hæð Herðubreiðar. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda.
Byggðaráð þakkar Hugrúnu fyrir kynninguna og komuna á fundinn.

Lagt fram til kynningar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?