Fara í efni

Heimastjórn Seyðisfjarðar

68. fundur 08. maí 2026 kl. 09:00 - 10:45 á skrifstofu sveitarfélagsins, Seyðisfirði
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Jón Halldór Guðmundsson aðalmaður
  • Margrét Guðjónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Í upphafi fundar bar formaður upp tillögu um að setja tvö ný mál á dagskrá "Handverksmarkaðurinn,beiðni um aðstoð" og "Starfhópur um undirbúning nýs Seyðisfjarðarskóla" fundagerð, sem liði 5 og 6. Engin gerði athugasmend við tillöguna og skoðast hún samþykkt. Uppfærðist röð fundarmála samkvæmt því.

1.Samstarfsbeiðni vegna doktorsverkefnisins Care Activistic Earth Weaving on Mount Strandatindur

Málsnúmer 202604093Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Julie Lænkholm varðandi doktorsverkefni hennar þar sem hún skoðar loftslagsbreytingar og óstöðugleika landslags með útgangspunkti í skriðunum á Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn þakkar Julie fyrir erindið, fagnar frumkvæðinu og væntir þess að sveitarfélagið veiti henni viðeigandi ráðgjöf og stuðning eftir því sem við á.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Sólstöðuhátíð á Seyðisfirði 2026

Málsnúmer 202605025Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi dags.15.04.2026 frá Teresu Mariu Rivarola þar sem hún óskar eftir leyfi sveitarfélagsins til að halda sumarsólstöðu- og götuhátíð á Norðurgötu á Seyðisfirði 19.júní næstkomandi.
Eftirfarandi bókun lögð fram:
Heimastjórn gerir ekki athugasemd við að haldin verði sólstöðu- og götuhátíð á Norðurgötu 19. júní með þeim hætti sem lýst er í erindi frá skipuleggjanda. Enda hefur umsækjandi haft samband við íbúa og fyrirtækjaeigendur götunnar sem tekið hafa vel í þetta verkefni. Starfsmanni falið að vinna málið áfram með deildarstjóra menningarmála.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

3.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júní til desember 2026

Málsnúmer 202604259Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundadagatali sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna tímabilið júní til desember 2026.
Verður tekið fyrir af nýrri heimastjórn.

4.Stýrihópur um framtíðarskipulag náttúrustofu

Málsnúmer 202605023Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu um skipun starfshóps sem falið er það hlutverk að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins.
Lagt fram til kynningar.

5.Handverksmarkaðurinn, beiðni um aðstoð

Málsnúmer 202605054Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi dags.6.maí sl. frá Sóley Rún Jónsdóttur fyrir hönd handverksmarkaðar Seyðisfjarðar. Jörgen Sveinn Þorvarðarson byggingafulltrúi mun sitja fundinn undir þessum lið.
Í upphafi þessar liðar vakti Jón Halldór Guðmundsson athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir þessu máli vegna fjölskyldutengsla. Bar formaður upp vanhæfistillögu sem var samþykkt og vék Jón af fundi undir þessum lið.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn gerir ekki athugasemdir við áform handverksmarkaðarins um að setja niður torgsöluhús. Heimastjórn bendir þó á að í ljósi umfangs verkefnisins þarf að liggja fyrir umsögn frá HMS um hvort húsið sé byggingarleyfisskylt eður ei. Ekki er heimilt að veita byggingarleyfi á þessu svæði samkvæmt umræddri notkun enda samræmist það ekki skipulagi.
Það er von heimastjórnar að úr þessu leysist á farsælan hátt.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Starfshópur - framkvæmd stækkun Seyðisfjarðarskóla

Málsnúmer 202211079Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundagerðir starfshóps um undirbúning nýs Seyðisfjarðarskóla dags.28.01 og 05.05.2026.
Lagt fram til kynningar

7.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Seyðisfirði

Málsnúmer 202601161Vakta málsnúmer

Fulltrúi sveitarstjóra fór yfir ýmis verkefni og stöðu mála.

Komur skemmtiferðaskipa: Fyrsta skemmtiferðaskipið kom 20.apríl sl með 2.000 farþega. Einungis fjórar komur skemmtiferðaskipa verða í maí með ca. 2500. farþega samanlagt.

Heildarfjöldi skemmtiferðaskipa í Seyðisfjarðarhöfn á árinu 2026 verða eins og staðan er í dag 86 komur, með 107.100 farþega plús 45.000 manns í áhöfn. Búið er að hækka þak fjölda farþega per skip úr 3.500 í 4.500 manns.

Baugur Bjólfs: Gaman að segja frá því að 29.milljónir króna fengust úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í uppbyggingu á bílastæði og gönguleið að Baugi Bjólfs.

Íbúafundur heimastjórnar: Góð mæting var á íbúafundinn sem haldinn var 30.apríl sl. í Herðubreið. Sveitarstjórinn, Dagmar Ýr Stefánsdóttir fór yfir stöðu mála og sagði m.a. frá heimsókn hóps á vegum ríkisstjórnarinnar sem er samansettur af embættismönnum frá fimm ráðuneytum sem hefur það hlutverk að aðstoða atvinnuhóp á vegum byggðaráðs sveitarfélagsins í að leita tækifæra fyrir ný atvinnutækifæri á Seyðisfirði. Hópurinn var í heimsókn á Seyðisfirði þennan dag og eftir kynningu sveitastjóra tók Karl Guðmundsson úr forsætisráðuneytinu til máls og sagði frá upplifun hópsins af heimsókninni.

Hugrún Hjálmarsdóttir fór yfir stöðu verkefna á umhverfis- og framkvæmdasviðinu þar sem heilmargt er í gangi. Fram kom að ný skólabygging er að fara í útboð, verklok áætluð sumarið 2028. Göngustígur að Gufufossi verður malbikaður í sumar. Snjóflóðavarnagarðar að klárast og í kjölfarið verður farið í heilmikla tiltekt og frágang sem inniheldur m.a. stíga, skilti og frágangi á fornminjum. Flutningur á Wathneshúsi/bæjaskrifstofu er áætlaður í haust, grenndarkynning stendur yfir og líkur 11. maí og áætlað er að bjóða sökkla og kjallara út núna í maí. Að lokum má nefna að gamli skóli fær smá upplyftingu í sumar.

Heimastjórn Þakkar íbúum, starfsmönnum og kjörnum fulltrúum fyrir ánægjulegt og farsælt samstarf á kjörtímabilinu og óskar næstu heimastjórn velfarnaðar í starfi.

Fundi slitið - kl. 10:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?