Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

175. fundur 23. febrúar 2026 kl. 08:30 - 11:40 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Guðný Margrét Hjaltadóttir varamaður
  • Sylvía Ösp Jónsdóttir varamaður
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir aðalmaður
  • Eiður Gísli Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Pétur Heimisson aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
  • Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda, sat fundinn undir lið 1.

1.Skýrsla sviðsstjóra framkvæmda

Málsnúmer 202512240Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda, Hugrún Hjálmarsdóttir, fer yfir stöðu verkefna á sviðinu.
Lagt fram til kynningar.

2.Deiliskipulagsbreyting, Djúpivogur, athafnasvæði við Innri-Gleðivík

Málsnúmer 202507004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnslutillaga vegna breytinga á deiliskipulagi athafnasvæðis við Innri-Gleðivík á Djúpavogi. Breytingin er tilkomin vegna fyrirhugaðra framkvæmda við tengingu Víkurlands við Hringveginn og í samræmi við kröfur Vegagerðarinnar um gatnahönnun. Lóðamörk og tengingar hafa verið endurskoðaðar og tveimur lóðum bætt við.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við heimastjórn Djúpavogs að fyrirliggjandi skipulagstillaga verði kynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

3.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Hryggstekkur 3

Málsnúmer 202602159Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Hryggstekkur (L157429). Verður til ein ný lóð úr jörðinni, Hryggstekkur 3.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Gagnstöð 2

Málsnúmer 202602158Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Gagnstöð (L157185). Verður til ein ný lóð úr jörðinni sem fær staðfangið Gagnstöð 2.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

5.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Finnsstaðir 6

Málsnúmer 202602157Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Finnsstaðir 1 (L158082). Verður til ein ný lóð úr jörðinni sem fær staðfangið Finnsstaðir 6.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

6.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Lindarbrekka 3

Málsnúmer 202602195Vakta málsnúmer

Í upphafi dagskrárliðar nr 6. vakti Eiður Gísli Guðmundsson (EGG) máls á vanhæfi sínu undir málslið 6 og bar JB upp tillögu til atkvæðagreiðslu. Vanhæfið var samþykkt samhljóða og vék EGG af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Lindarbrekka (L159117). Ný lóð verður 2151,8m2 og fær heitið Lindarbrekka 3.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

7.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Auglýsing nýs Aðalskipulags Múlaþins 2025-2045 stóð yfir frá 19. desember 2025 til 11. febrúar 2026. 67 umsagnir bárust og liggur fyrir samantekt á þeim ásamt drögum að viðbrögðum.
Málið er áfram í vinnslu.

Fundi slitið - kl. 11:40.

Getum við bætt efni þessarar síðu?