Fara í efni

Samráðsgátt. Frumvarp til laga um lagareldi, mál nr. S 252 2025

Málsnúmer 202601003

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 175. fundur - 06.01.2026

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. S 252/2025, Drög að frumvarpi til laga um lagareldi.
Umsagnarfrestur er til og með 26.1. 2026.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 176. fundur - 20.01.2026

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. S 252/2025, Drög að frumvarpi til laga um lagareldi. Umsagnarfrestur er til og með 26.1. 2026.
Málið var áður á dagskrá byggðaráðs 6. janúar 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð samþykkir fyrirliggjandi umsögn byggðaráðs um drög að frumvarpi til laga um lagareldi og felur sviðsstjóra stjórnsýslu að birta hana í Samráðsgátt.

Samþykkt með 4 atkvæðum en 1 sat hjá (HHÁ).

Helgi Hlynur Ásgrímsson lagði fram eftirfarandi bókun: Fulltrúar V lista munu líka senda inn sínar athugasemdir við málið í Samráðsgátt.

Byggðaráð Múlaþings - 185. fundur - 07.04.2026

Fyrir liggur í umsagnagátt Alþingis mál 529, Lagareldi, og 530, Lax- og silungsveiði o.fl. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 10. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda inn umsögn um frumvarpið í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt með 4 atkvæðum með handauppréttingu, einn sat hjá (HHÁ).
Getum við bætt efni þessarar síðu?