Fara í efni

Umsögn vegna byggingarleyfis fyrir sjókvíeldi í Seyðisfirði

Málsnúmer 202603003

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 177. fundur - 11.03.2026

Í upphafi dagskrárliðar nr 11. vakti Ásdís Hafrún Benediktsdóttir (ÁHB) máls á mögulegu vanhæfi sínu undir málslið 11, og bar JB upp tillögu til atkvæðagreiðslu.
Vanhæfið var fellt með 5 atkvæðum, 2 sátu hjá (ÁMS, ÁHB).

Fyrir liggur umsagnarbeiðni, dags. 24. febrúar 2026, frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun vegna umsóknar Kaldvíkur hf. um byggingarleyfi fyrir sjókvíum á tveimur eldissvæðum í Seyðisfirði; Sörlastaðavík og Selstaðavík.
Umsagnarfrestur er til og með 18. mars nk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn og felur starfsmönnum að koma henni á framfæri við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?