Fara í efni

Umsókn um byggingarheimild, Stekkjartröð 10, 700

Málsnúmer 202603022

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 178. fundur - 23.03.2026

Fyrir liggur umsókn um byggingaráform við Stekkjartröð 10 (L157995) á Egilsstöðum sem fela í sér viðbyggingu fyrir bílskúr. Áformin eru í samræmi við aðalskipulag en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að áformin verði grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning nái til fasteignaeigenda Stekkjartraðar 7, 8, 9, 11 og 13.
Jafnframt er óskað eftir uppfærðum grenndarkynningargögnum, í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 183. fundur - 18.05.2026

Grenndarkynningu byggingaráforma við Stekkjartröð 10 (L157995) á Egilsstöðum sem fela í sér viðbyggingu fyrir bílskúr, lauk þann 13. maí sl. Athugasemdir bárust og liggur fyrir ráðinu að taka þær til umfjöllunar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að mati umhverfis- og framkvæmdaráðs gefa framkomnar athugasemdir tilefni til breytinga á fyrirliggjandi byggingaráformum. Lagt er til að húsið verði lækkað og stytt með það að markmiði að draga úr skuggavarpi á aðliggjandi lóð, bæta birtuskilyrði og stuðla að betra samræmi byggingar við nærliggjandi byggð.
Óskað er eftir því að uppfærðar teikningar verði lagðar fyrir ráðið.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?