Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

178. fundur 23. mars 2026 kl. 08:30 - 11:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Guðný Margrét Hjaltadóttir varamaður
  • Björgvin Stefán Pétursson aðalmaður
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir aðalmaður
  • Eiður Gísli Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hulda Sigurdís Þráinsdóttir varamaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Sóley Valdimarsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála, sat fundinn undir liðum nr. 1-8.

Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála, sat fundinn undir liðum nr. 9-12.

Jón Kristófer Arnarsson, garðyrkjustjóri, sat fundinn undir lið nr. 11.

1.Afslættir af gatnagerðargjöldum í Múlaþingi 2026-2030

Málsnúmer 202602089Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að nýju, umræða vegna afslátta af gatnagerðagjöldum af iðnaðar-, athafna-, verslunar- og þjónustulóðum í Múlaþingi 2026-2030. Ráðið vísaði umræðunni til byggðarráðs, á 174. fundi þann 16. febrúar sl., og var málið tekið fyrir á 183. fundi Byggðarráðs 17. mars síðastliðinn.
Byggðaráð hvetur umhverfis- og framkvæmdaráð til að endurskoða og samræma afslætti á gatnagerðargjöldum af ofangreindum lóðum, sem og íbúðarlóðum í sveitarfélaginu. Byggðaráð hvetur ráðið einnig til að leita leiða við að fjölga atvinnulóðum, sérstaklega á Egilsstöðum, sem og að setja afslætti á atvinnu- og iðnaðarlóðir í Fellabæ til að ýta undir uppbyggingu atvinnulífs þar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan í bókun byggðaráðs samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að settur verði 50% afsláttur af gatnagerðargjöldum athafnalóða við Selblá og Valgerðarveg í Fellabæ. Afslátturinn verður í gildi út árið 2027. Hvað varðar samræmingu afslátta af íbúðarhúsalóðum vísar ráðið því til umræðu fyrir næsta ár.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að minnisblaði um afslætti af gatnagerðargjöldum og vísar því til staðfestingar hjá sveitarstjórn.

Verkefni um fjölgun atvinnulóða er áfram í vinnslu hjá starfsfólki umhverfissviðs.

Samþykkt samhljóða.

2.Innsent erindi, aðalskipulagsbreyting, Víkurland 7

Málsnúmer 202603171Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi frá fasteignaeiganda við Víkurland 7 á Djúpavogi þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi, eða skilmálum þess, svo heimilt verði að vera með verslunar- og þjónustustarfsemi á lóðinni sem í dag tilheyrir íbúðarbyggð.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að gert verði ráð fyrir breyttri landnotkun í nýju aðalskipulagi Múlaþings í samræmi við fyrirliggjandi erindi.

Mikilvægt er að þegar að áformin taka á sig skýrari mynd, að málsaðili verði í góðum samskiptum við sveitarfélagið og Vegagerðina vegna umferðaröryggis á svæðinu.

Samþykkt samhljóða.

3.Ránargata 1 Wathnehúsið, Seyðisfirði

Málsnúmer 202602088Vakta málsnúmer

Fyrir liggja gögn um byggingaráform við Ránargötu 1 (L155212) á Seyðisfirði í tengslum við flutning á Wathnehúsinu frá Hafnargötu 44, að Ránargötu 1. Ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu og liggur fyrir ráðinu að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að áformin verði grenndarkynnt fyrir íbúum Seyðisfjarðar á miðlum sveitarfélagsins, í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsókn um byggingarleyfi, Skólavegur 1, 710

Málsnúmer 202602275Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Grunnskólann á Seyðisfirði við Skólaveg 1 (L155232). Áformin eru í samræmi við aðalskipulag en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fyrirliggjandi gögn verði grenndarkynnt fyrir íbúum á miðlum sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

5.Umsókn um byggingarheimild, Stekkjartröð 10, 700

Málsnúmer 202603022Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um byggingaráform við Stekkjartröð 10 (L157995) á Egilsstöðum sem fela í sér viðbyggingu fyrir bílskúr. Áformin eru í samræmi við aðalskipulag en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að áformin verði grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning nái til fasteignaeigenda Stekkjartraðar 7, 8, 9, 11 og 13.
Jafnframt er óskað eftir uppfærðum grenndarkynningargögnum, í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

6.Lóðaleigusamningur, Hraungarður 1, Eiðar

Málsnúmer 202306112Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá RÚV ohf. þar sem óskað er eftir gerð lóðaleigusamnings um Hraungarð 1, 2,8 ha. lóð á Eiðum. Enginn lóðaleigusamningur er fyrir hendi en samkvæmt samkomulagi hafði Ríkisútvarpið afnot af landinu undir rekstur langbylgjustöðvar sem nú hefur verið hætt.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur formanni ráðsins, skipulagsfulltrúa og sveitastjóra að eiga samtal við málsaðila um þá kosti sem í boði eru fyrir lóðarhafa.
Málið er áfram í vinnslu.

7.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Ytra-Geitland

Málsnúmer 202603093Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Geitland 1(L240529). Verður til ein ný lóð úr jörðinni, Ytra-Geitland.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

8.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Hryggstekkur tengivirki

Málsnúmer 202603095Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Hryggstekkur (L157429). Verður til ein ný lóð úr jörðinni, Hryggstekkur - Tengivirki.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

9.Framtíð landvörslu á Víknaslóðum

Málsnúmer 202501052Vakta málsnúmer

Framlagt minnisblað um framtíð landvörslu á Víknaslóðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti þær tillögur sem lagðar eru fram í minnisblaði og felur verkefnastjóra umhverfismála og starfsmanni heimastjórnar á Borgarfirði að vinna málið áfram.
Málið er áfram í vinnslu.

Samþykkt samhljóða.

10.Refa- og minkaveiðar í Múlaþingi

Málsnúmer 202603158Vakta málsnúmer

Í upphafi dagskrárliðar nr 10. vakti Eiður Gísli Guðmundsson (EGG) máls á vanhæfi sínu undir málsliðnum og bar JB upp tillögu til atkvæðagreiðslu. Vanhæfið var samþykkt samhljóða og vék EGG af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Framlögð kynning á fyrirkomulagi refa- og minkaveiða í Múlaþingi til umræðu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Verkefnastjóri umhverfismála fór yfir fyrirkomulag refa- og minkaveiða í Múlaþingi og tillögur að breytingum á þeim. Umhverfis- og framkvæmdaráð felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna málið áfram og leggja fyrir ráðið að nýju.

Samþykkt samhljóða.

11.Vinnuskóli 2026

Málsnúmer 202603159Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um starf Vinnuskólans í Múlaþingi 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagðar tillögur í minnisblaði frá verkefnastjóra umhverfismála og felur honum að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Jón Kristófer Arnarsson - mæting: 11:07

12.Almenningssamgöngur á Austurlandi - landsbyggðarvagnar

Málsnúmer 202603132Vakta málsnúmer

Framlögð til kynningar fundargerð samráðsfundar Vegagerðarinnar með hagaðilum á Austurlandi um landsbyggðarvagna.
Lagt fram til kynningar.

13.Skýrsla sviðsstjóra framkvæmda

Málsnúmer 202512240Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda, Hugrún Hjálmarsdóttir, fer yfir stöðu verkefna á sviðinu.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?