Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

160. fundur 19. maí 2026 kl. 12:00 - 14:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Sigurður Gunnarsson formaður
  • Björg Eyþórsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Einar Freyr Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Sóley Rún Jónsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Steinunn Árnadóttir deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir Sviðstjóri menntunar og lýðheilsu
Áheyrnarfulltrúar tónlistarskólanna, Bríet Finnsdóttir og Sóley Þrastardóttir, sátu lið 1. Áheyrnarfulltrúar grunnskóla, Dagbjört Kristinsdóttir og Karen Sveinsdóttir, sátu liði 2?4. Áheyrnarfulltrúi leikskóla, Dagur Björnsson, sat lið 2.

Sóley Þrastardóttir og Drífa Sigurðardóttir, skólastjórar tónlistarskólanna á Egilsstöðum og í Fellabæ, fylgdu eftir máli skólanna í lið 1. Viðar Jónsson, skólastjóri Egilsstaðaskóla, fylgdi eftir lið 3 og Ásgrímur Ingi Arngrímsson, skólastjóri Brúarásskóla, sat lið 4.

1.Skóladagatöl tónlistarskóla 2026-2027

Málsnúmer 202605112Vakta málsnúmer

Fyrir liggja skóladagatöl 2026-2027 fyrir Tónlistarskólann á Egilsstöðum og Tónlistarskólann í Fellabæ.
Fjölskylduráð samþykkir skóladagatöl tónlistarskólanna 2026-2027.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Kristni og kristinfræði í grunnskólum og leikskólum Múlaþings

Málsnúmer 202605059Vakta málsnúmer

Á 68. fundi sveitarstjórnar, sem haldinn var 13. maí 2026, var erindi Þrastar Jónssonar, sveitarstjórnarfulltrúa, um kristni og kristinfræði í grunn- og leikskólum tekið til umfjöllunar. Sveitarstjórn vísaði málinu til frekari umfjöllunar hjá fjölskylduráði.
Fjölskylduráð þakkar Þresti Jónssyni fyrir erindið.

Gildandi hæfniviðmið Aðalnámskrár fyrir samfélagsgreinar taka meðal annars til siðferðs og trúar, þar sem fjallað er um grunngildi trúarbragða og menningar. Kristin trú er hluti af íslenskri menningu og hvetur ráðið skóla Múlaþings til að vinna áfram markvisst eftir þeim hæfniviðmiðum sem tryggja börnum þekkingarlegan grunn á menningu og siðferði eins og kveðið er á um í grunnskólalögum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

ÞJ lagði fram eftirfarandi bókun:
Bæti við bókun fjölskylduráðs að í 2. grein grunnskólalaga (markmið) er áréttað svo: „Starfshættir grunnskóla skulu mótast af umburðarlyndi og kærleika, kristinni arfleifð íslenskrar menningar, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi."

3.Fundargerðir skólaráðs Egilsstaðaskóla

Málsnúmer 202010627Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð skólaráðs Egilsstaðaskóla, dagsett 28. apríl 2026.
Lagt fram til kynningar.

4.Fasteignir Múlaþings í Brúarási

Málsnúmer 202605114Vakta málsnúmer

Til umræðu er ákvörðun á 171. fundi byggðarráðs, dagsett 25. nóvember 2025, um að selja einbýlishúsið í Brúarási þegar það losnar.
Fjölskylduráð telur mikilvægt að húsnæðið í Brúarási verði áfram í eigu sveitarfélagsins enda geti aðgengi að húsnæði skipt sköpum við ráðningu starfsfólks við skólann. Ráðið leggur jafnframt áherslu á að sveitarfélagið styðji markvisst við dreifbýlið og tryggi áframhaldandi skólastarf í Brúarásskóla meðal annars með því að geta boðið upp á húsnæði.
Fjölskylduráð hvetur því byggðaráð til að endurskoða ákvörðun sína.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Aðgengismál sveitarfélagsins

Málsnúmer 202603103Vakta málsnúmer

Á fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks þann 30. apríl sl., vísaði samráðshópurinn erindi til fjölskylduráðs er varðar þarfagreiningu á húsnæði Stólpa.
Málinu frestað til næsta fundar.

6.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs 2026

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu.
Skýrsla lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?