Fara í efni

Vinnuskóli 2026

Málsnúmer 202603159

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 178. fundur - 23.03.2026

Lagt fram minnisblað um starf Vinnuskólans í Múlaþingi 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagðar tillögur í minnisblaði frá verkefnastjóra umhverfismála og felur honum að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Jón Kristófer Arnarsson - mæting: 11:07

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 184. fundur - 08.06.2026

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings leggur áherslu á að ungmenni sveitarfélagsins eigi kost á þátttöku í Vinnuskóla Múlaþings. Ráðið telur mikilvægt að tryggja jafnt aðgengi að sumarstörfum og þeirri reynslu, ábyrgð og samfélagsþátttöku sem vinnuskólinn veitir ungmennum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umsóknarfrestur rann út 17. maí sl. og ekki hefur verið tekið við umsóknum eftir þann tíma. Ráðið hefur ákveðið að opnað verði tímabundið aftur fyrir umsóknir í Vinnuskóla Múlaþings þannig að þeir einstaklingar sem misstu af umsóknarfresti fái annað tækifæri til að sækja um.

Ráðið felur starfsfólki umhverfissviðs að útfæra fyrirkomulag enduropnunar umsókna.

Ráðið vill jafnframt árétta það við foreldra barna, að umsóknarfrestur sé virtur.

Samþykkt með 6 atkvæðum, 1 situr hjá (ÞBJ) B-lista.
Getum við bætt efni þessarar síðu?