- Þjónusta
- Mannlíf
- Stjórnsýsla
- Sveitarstjórn, ráð og stjórnir
- Sveitarstjóri
- Sveitarstjórn
- Byggðarráð
- Fjölskylduráð
- Umhverfis- og framkvæmdaráð
- Heimastjórn Borgarfjarðar
- Heimastjórn Djúpavogs
- Heimastjórn Fljótsdalshéraðs
- Heimastjórn Seyðisfjarðar
- Ungmennaráð
- Öldungaráð
- Samráðshópur, málefni fatlaðs fólks
- Yfirkjörstjórn
- Stjórn HEF veitna
- Sameiginlegar nefndir og stjórnir
- Fundadagatal allra nefnda og ráða
- Fundargerðir ráða og nefnda
- Skipurit stjórnsýslunnar
- Reglur, samþykktir og stefnur
- Starfsemin
- Persónuvernd
- Fjármál
- Útgefið efni og auglýsingar
- Byggðarkjarnar
- Sveitarstjórn, ráð og stjórnir
- Mínar síður
Það að flytja línuívilnun yfir í strandveiðipottinn mun hins vegar alls ekki auka atvinnuöryggi á stöðum eins og Borgarfirði. Vegna landfræðilegrar legu og hafnarskilyrða verður aldrei annað en smábátaútgerð á stöðum eins og Borgarfirði en línuívilnun var sett á til að tryggja atvinnu og jafna hlut minni byggða. Línuívilnun tryggir störf í landi árið um kring og styður við það útgerðarmynstur sem verið hefur á Borgarfirði. Strandveiðar veita hins vegar innspýtingu í atvinnulífið part úr ári og er nauðsynlegt að festa í sessi sem stuðning við heilsársveiðar og atvinnu.
Heimastjórn Borgarfjarðar telur aðrar leiðir færar til að tryggja fullan dagafjölda til strandveiða og halda áfram að veita línuívlinun, svo sem að auka hlutfall í félagslega pottinum og taka til í byggðakvótahlutanum. Það er skoðun heimastjórnar að breytingar þær sem lagðar eru fram í frumvarpi innviðaráðherra séu verulega íþyngjandi fyrir Borgarfjörð eystri og aðrar smærri byggðir og að frumvarpið sé enn ein aðförin að minnstu stöðum landsins sem reiða sig að öllu leyti á útgerð smábáta.
Heimastjórn Borgarfjarðar eystri vill að innviðaráðherra falli frá áformum um afnám línuívilnunar.
Samþykkt einróma og vísað til byggðaráðs.