Fara í efni

Snjómokstur og viðhald vega

Málsnúmer 202604033

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 182. fundur - 04.05.2026

Svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi situr fundinn undir þessum lið og tekur þátt í umræðu vegna umsjá vega í sveitarfélaginu með sérstöku tilliti til snjómoksturs vetrarins; mokstri í Fellum, helmingamoksturs, bæta við mokstursdegi á Borgarfjörð og umræðum um Fjarðarheiði og hvernig þar hefur gengið. Eins var farið yfir viðhald malarvega í sveitarfélaginu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar Vegagerðinni fyrir góð svör og gott samtal.
Ráðið telur ljóst að verulega fjármuni vantar til Vegagerðarinnar á Austursvæði til að bæta við vetrarþjónustu innan Múlaþings. Heimastjórnirnar allar hafa ítrekað fjallað um þessi mál og telur umhverfis- og framkvæmdaráð ástæðu til að ítreka kröfur til Vegagerðarinnar og beina bókuninni einnig að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sem nú hefur til umfjöllunar drög að nýrri samgönguáætlun.
Aukið fjármagn þarf til að tryggja vetraropnun alla daga vikunnar á Borgarfjarðarvegi nr. 94 um Vatnsskarð eystra. Nú er einungis opnað 6 daga vikunnar, lokað á laugardögum.
Auka þarf vetrarþjónustu á Axarvegi og er það skýlaus krafa að vegurinn verði nú þegar tekinn af G reglu Vegagerðarinnar og þjónustaður í samræmi við þá miklu umferð sem um hann fer.
Tryggja þarf fullnægjandi vetrarþjónustu um allt sveitarfélagið, sérstaklega á Upphéraðsvegi: Fellabær - Hjarðarból nr. 931 til jafns við veginn hinumegin Lagarfljóts (Upphéraðsvegur: Úlfsstaðir - Hjarðarból) sem er opnaður alla daga vikunnar.
Þess er einnig krafist að fallið verði frá helmingamokstri á Jökuldalsvegi nr. 923 og lagt til að vegurinn komist inn á fulla vetrarþjónustu hjá Vegagerðinni.
Múlaþing er 10% af Íslandi og innan sveitarfélagsins er gríðarlegur fjöldi malarvega sem flestir eru í mikilli þörf á viðhaldi þar sem burðarlag veganna er að mestu horfið. Sú aðgerð að hefla vegi sem hafa ekki burðarlag er skammgóður vermir og langt því frá nægjanleg. Það er krafa að aukið fjármagi komi til svo hægt sé að fara í það að bera í vegina kerfisbundið og að Vegagerðin forgangsraði þeim verkefnum í samráði við sveitarfélagið. Þess er einnig krafist að aukið fjármagn komi til að fara í reglubundnar endurbætur á heimreiðum.
Málinu er vísað til sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Loftur Þór Jónsson - mæting: 10:48

Sveitarstjórn Múlaþings - 68. fundur - 13.05.2026

Á 182. fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings 4. maí 2026 var til umræðu snjómokstur og viðhald vega í sveitarfélaginu. Loftur Þór Jónsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi, sat fyrir svörum á fundinum.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísaði málinu til sveitastjórnar.
Til máls tóku: Jónína Brynjólfsdóttir, Hildur Þórisdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Þröstur Jónsson, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Eyþór Stefánsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Vilhjálmur Jónsson, Ívar Karl Hafliðason, Hildur Þórisdóttir, Þröstur Jónsson, Helgi Hlynur Ásgrímsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings tekur undir áhyggjur og kröfur umhverfis- og framkvæmdaráðs og allra heimastjórna sveitarfélagsins varðandi stöðu vegamála. Sveitarstjórn þakkar Vegagerðinni fyrir samstarfið en telur ljóst að verulega skorti á fjármagn til stofnunarinnar á Austursvæði til að tryggja fullnægjandi öryggi og þjónustustig á vegakerfinu innan Múlaþings.

Sveitarstjórn ítrekar þær kröfur að aukið fjármagn verði tryggt svo unnt sé að bjóða upp á vetraropnun alla daga vikunnar á Borgarfjarðarvegi nr. 94 um Vatnsskarð eystra, en núverandi fyrirkomulag með lokun á laugardögum er óviðunandi. Þá er það skýlaus krafa að Axarvegur verði nú þegar tekinn af G-reglu Vegagerðarinnar og þjónustaður í samræmi við þá miklu umferð sem um hann fer. Tryggja þarf fullnægjandi vetrarþjónustu um allt sveitarfélagið og er sérstaklega kallað eftir því að Upphéraðsvegur, á kaflanum frá Fellabæ að Hjarðarbóli, verði opnaður alla daga vikunnar til jafns við veginn austan megin Lagarfljóts. Einnig er þess krafist að fallið verði frá helmingamokstri á Jökuldalsvegi nr. 923 og að hann verði færður í fulla vetrarþjónustu.

Innan Múlaþings er gríðarlegur fjöldi malarvega sem flestir eru í mikilli þörf á viðhaldi þar sem slitlag þeirra er að mestu horfið. Sveitarstjórn áréttar að sú aðgerð að hefla vegi sem skortir slitlag er skammgóður vermir og langt því frá nægjanleg. Það er krafa sveitarstjórnar að aukið fjármagn verði tryggt svo hægt sé að bera í vegi og heimreiðar með kerfisbundnum hætti og að Vegagerðin forgangsraði þeim verkefnum í samráði við sveitarfélagið. Sveitarstjórn beinir þessari bókun til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, sem nú hefur til umfjöllunar drög að nýrri samgönguáætlun, og leggur áherslu á að tekið verði tillit til þessara sanngirniskrafna við úthlutun fjármagns.

Sveitarstjóra er falið að koma erindinu á framfæri við Vegagerðina, innviðaráðherra, fjármálaráðherra og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?