Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

182. fundur 04. maí 2026 kl. 08:30 - 11:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Þórhallur Borgarson varaformaður
  • Björgvin Stefán Pétursson aðalmaður
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir aðalmaður
  • Eiður Gísli Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Þórunn Hrund Óladóttir varamaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Hafnastjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, staðgengill hafnastjóra, Eiður Ragnarsson, markaðsstjóri hafna, Aðalheiður Borgþórsdóttir og yfirhafnavörður, Rúnar Gunnarsson, sátu fundinn undir liðum 1. og 2.

Verkefnastjóri framkvæmdamála, Rúnar Matthíasson, sat fundinn undir lið 3.

Svæðisstjóri austurlands hjá Vegagerðinni, Loftur Þór Magnússon, sat fundinn undir liðum 9. og 10.

Sveitastjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sat fundinn undir liðum 9. og 10.

1.Skýrsla hafnastjóra, 2026

Málsnúmer 202601063Vakta málsnúmer

Hafnastjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, og staðgengill hafnastjóra, Eiður Ragnarsson, fara yfir stöðu verkefna hjá höfnum Múlaþings.
Lagt fram til kynningar.

2.Fundargerðir stjórnar Hafnasamband Íslands 2026

Málsnúmer 202601221Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð 481. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands.
Lagt fram til kynningar.

3.Hammersminni 15b Leikskólinn Bjarkatún, viðbygging

Málsnúmer 202502050Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggja útboðsgögn fyrir viðbyggingu við Leikskólan Bjarkartún á Djúpavogi. Óskað er eftir því að ráðið heimili að útboðið sé sett í gang.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela verkefnastjóra framkvæmdamála að bjóða út framkvæmdina.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsókn um byggingarleyfi, Skólavegur 1, 710

Málsnúmer 202602275Vakta málsnúmer

Grenndarkynningu byggingaráforma við Skólaveg 1 á Seyðisfirði lauk þann 28. apríl 2026 án athugasemda.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð staðfestir að framkvæmd grenndarkynningar skv. 44. gr. skipulagslaga sé lokið án athugasemda.

Samþykkt samhljóða.

5.Umsókn um framkvæmdaleyfi, Eyrarteigsá, efnistaka

Málsnúmer 202604041Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Héraðsverk ehf vegna efnistöku í Eyrarteigsá í Skriðdal. Efnistökustaður er samkvæmt aðalskipulagi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að gefið verði út umbeðið framkvæmdaleyfi, með fyrirvara um jákvæða umsögn Minjastofnunar Íslands. Skipulagsfulltrúa er falið að gefa út leyfið með þeim fyrirvara sem nefndur er hér að ofan.

Samþykkt samhljóða.

6.Miðbær á Egilsstöðum, uppbygging

Málsnúmer 202308120Vakta málsnúmer

Fyrir liggja lóðablöð fyrir nýjar lóðir við Kaupvang 20 og Sólvang 2-6 í miðbæ Egilsstaða. Samkvæmt deiliskipulagi er gert ráð fyrir byggingu fjögurra fjölbýlishúsa á lóðunum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að auglýsa lóðirnar lausar til úthlutunar í samræmi við lið b) í 3. grein reglna um úthlutun lóða hjá Múlaþingi.

Samþykkt samhljóða.

7.Umsagnarbeiðni um 595. mál, Loftslagslög

Málsnúmer 202604226Vakta málsnúmer

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis liggur fyrir erindi um umsögn vegna 595. máls um Loftslagslög.
Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis og er frestur til að senda inn umsögn til og með 8. maí næstkomandi.

Tekið skal fram að þeim sem fá mál til umsagnar er ekki skylt að bregðast við og ekki þarf að senda sérstaka tilkynningu ef engar athugasemdir eru.
Lagt fram til kynningar.

8.Skýrsla sviðsstjóra framkvæmda

Málsnúmer 202512240Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda, Hugrún Hjálmarsdóttir, fer yfir stöðu verkefna á sviðinu.
Lagt fram til kynningar.

9.Vegagerðin, staða framkvæmda í Múlaþingi 2026-2030

Málsnúmer 202604270Vakta málsnúmer

Svæðisstjóri austursvæðis kynnir fyrir ráðinu fyrirhugaðar öryggisaðgerðir Vegagerðarinnar í Múlaþingi.
Ráðið þakkar Lofti fyrir gott samtal og yfirferð á stöðu framkvæmda í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar.

Gestir

  • Loftur Þór Jónsson - mæting: 10:05

10.Snjómokstur og viðhald vega

Málsnúmer 202604033Vakta málsnúmer

Svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi situr fundinn undir þessum lið og tekur þátt í umræðu vegna umsjá vega í sveitarfélaginu með sérstöku tilliti til snjómoksturs vetrarins; mokstri í Fellum, helmingamoksturs, bæta við mokstursdegi á Borgarfjörð og umræðum um Fjarðarheiði og hvernig þar hefur gengið. Eins var farið yfir viðhald malarvega í sveitarfélaginu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar Vegagerðinni fyrir góð svör og gott samtal.
Ráðið telur ljóst að verulega fjármuni vantar til Vegagerðarinnar á Austursvæði til að bæta við vetrarþjónustu innan Múlaþings. Heimastjórnirnar allar hafa ítrekað fjallað um þessi mál og telur umhverfis- og framkvæmdaráð ástæðu til að ítreka kröfur til Vegagerðarinnar og beina bókuninni einnig að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sem nú hefur til umfjöllunar drög að nýrri samgönguáætlun.
Aukið fjármagn þarf til að tryggja vetraropnun alla daga vikunnar á Borgarfjarðarvegi nr. 94 um Vatnsskarð eystra. Nú er einungis opnað 6 daga vikunnar, lokað á laugardögum.
Auka þarf vetrarþjónustu á Axarvegi og er það skýlaus krafa að vegurinn verði nú þegar tekinn af G reglu Vegagerðarinnar og þjónustaður í samræmi við þá miklu umferð sem um hann fer.
Tryggja þarf fullnægjandi vetrarþjónustu um allt sveitarfélagið, sérstaklega á Upphéraðsvegi: Fellabær - Hjarðarból nr. 931 til jafns við veginn hinumegin Lagarfljóts (Upphéraðsvegur: Úlfsstaðir - Hjarðarból) sem er opnaður alla daga vikunnar.
Þess er einnig krafist að fallið verði frá helmingamokstri á Jökuldalsvegi nr. 923 og lagt til að vegurinn komist inn á fulla vetrarþjónustu hjá Vegagerðinni.
Múlaþing er 10% af Íslandi og innan sveitarfélagsins er gríðarlegur fjöldi malarvega sem flestir eru í mikilli þörf á viðhaldi þar sem burðarlag veganna er að mestu horfið. Sú aðgerð að hefla vegi sem hafa ekki burðarlag er skammgóður vermir og langt því frá nægjanleg. Það er krafa að aukið fjármagi komi til svo hægt sé að fara í það að bera í vegina kerfisbundið og að Vegagerðin forgangsraði þeim verkefnum í samráði við sveitarfélagið. Þess er einnig krafist að aukið fjármagn komi til að fara í reglubundnar endurbætur á heimreiðum.
Málinu er vísað til sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Loftur Þór Jónsson - mæting: 10:48

Fundi slitið - kl. 11:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?