Fara í efni

Fjarskiptasamband í Skriðdal

Málsnúmer 202605014

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 70. fundur - 24.06.2026

Fyrir liggur minnisblað um fjarskiptasamband í Skriðdal frá opnum fundi heimastjórnar sem haldinn var á Arnhólsstöðum 21. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vísar minnisblaði um fjarskiptasamband í Skriðdal til byggðaráðs Múlaþings.

Heimastjórn vill einnig benda á að fjarskiptasamband víðar í sveitarfélaginu hafi versnað til muna eftir að slökkt var á 2G og 3G sendum fjarskiptafyrirtækja. Heimastjórn telur þetta mikilvægt öryggismál fyrir íbúa og ferðamenn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Djúpavogs - 71. fundur - 26.06.2026

Heimastjórn Djúpavogs vísar í bókun sína frá 10. apríl 2025, málsnr. 202502184 um stöðu fjarskiptamála á Austurlandi. Þar var bent á að stórbæta þurfi fjarskipti í gamla Djúpavogshreppi. Með niðurfellingu á 2G og 3G hefur ástand á fjarskiptamálum snarversnað bæði til sjós og lands.

Heimastjórn beinir því til sveitarstjórnar að krefjast úrbóta í fjarskiptamálum í sveitarfélaginu öllu sem allra fyrst, enda mikilvægt öryggismál fyrir íbúa og ferðamenn.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?