Fara í efni

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs

70. fundur 24. júní 2026 kl. 09:00 - 11:50 á skrifstofu sveitarfélagsins, Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Eiður Ragnarsson formaður
  • Anna H. Bragadóttir aðalmaður
  • Hafsteinn Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra

1.Erindisbréf nefnda

Málsnúmer 202606063Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar erindisbréf heimastjórnar Fljótsdalshéraðs sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar Múlaþings 3. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

2.Siðareglur kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 202605238Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar siðareglur kjörinna fulltrúa í Múlaþingi.
Lagt fram til kynningar.

3.Fundir heimastjórnar Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 202606138Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að fyrirkomulagi funda heimastjórnar Fljótsdalshéraðs til loka maí 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir að fastur fundartími heimastjórnarinnar verði að jafnaði fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Fráveitumál á Eiðum

Málsnúmer 202605011Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um fráveitumál á Eiðum frá opnum fundi heimastjórnar sem haldinn var í gamla barnaskólanum á Eiðum 20. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vísar minnisblaði um fráveitumál á Eiðum til umfjöllunar hjá HEF veitum ehf.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Fjarskiptasamband í Skriðdal

Málsnúmer 202605014Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um fjarskiptasamband í Skriðdal frá opnum fundi heimastjórnar sem haldinn var á Arnhólsstöðum 21. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vísar minnisblaði um fjarskiptasamband í Skriðdal til byggðaráðs Múlaþings.

Heimastjórn vill einnig benda á að fjarskiptasamband víðar í sveitarfélaginu hafi versnað til muna eftir að slökkt var á 2G og 3G sendum fjarskiptafyrirtækja. Heimastjórn telur þetta mikilvægt öryggismál fyrir íbúa og ferðamenn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Félagsheimilið Arnhólsstöðum í Skriðdal

Málsnúmer 202605015Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um félagsheimilið Arnhólsstöðum frá opnum fundi heimastjórnar sem haldinn var á Arnhólsstöðum 21. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vísar minnisblaði um félagsheimilið Arnhólsstöðum til umfjöllunar á umhverfissviði og felur starfsmanni að kalla eftir upplýsingum um viðhaldsþörf félagsheimila í eigu sveitarfélagsins á Fljótsdalshéraði.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Fjallskil í Múlaþingi 2026

Málsnúmer 202605016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um fjallskil í Múlaþingi frá opnum fundum heimastjórnar sem haldnir voru 20. og 21. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vísar minnisblaði um fjallskil í Múlaþingi til umfjöllunar á umhverfissviði og felur starfsmanni að boða verkefnastjóra umhverfismála á næsta fund heimastjórnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Heimreiðar

Málsnúmer 202512201Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um ástand heimreiða á Fljótsdalshéraði frá opnum fundum heimastjórnar sem haldnir voru 20. og 21. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vísar minnisblaði um ástand heimreiða á Fljótsdalshéraði til umfjöllunar á umhverfissviði. Ástand þessara vega er óviðunandi vegna ófullnægjandi viðhalds til langs tíma og óboðlegt að bjóða íbúum upp á þessar aðstæður.

Heimastjórn felur starfsmanni að bjóða umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á Austurlandi á næsta fund heimastjórnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

9.Samgöngur og innviðir í Múlaþingi

Málsnúmer 202501217Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um samgöngur og ástand vega á Fljótsdalshéraði frá opnum fundum heimastjórnar sem haldnir voru 20. og 21. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vísar minnisblaði um samgöngur og ástand vega á Fljótsdalshéraði til umfjöllunar á umhverfissviði. Ástand þessara vega er óviðunandi vegna ófullnægjandi viðhalds til langs tíma og óboðlegt að bjóða íbúum upp á þessar aðstæður.

Heimastjórn felur starfsmanni að bjóða umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á Austurlandi á næsta fund heimastjórnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

10.Opnunartími leikskólans í Brúarási

Málsnúmer 202512204Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um opnunartíma leikskólans í Brúarási frá opnum fundi heimastjórnar sem haldinn var í Brúarásskóla 20. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vísar minnisblaði um opnunartíma leikskólans í Brúarási til umfjöllunar á fjölskyldusviði.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

11.Stýrihópur um framtíðarskipulag náttúrustofu

Málsnúmer 202605023Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu um skipun starfshóps sem falið er það hlutverk að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins.
Lagt fram til kynningar.

12.Niðurfelling varnarlína vegna sauðfjársjúkdóma Jökuldalslína

Málsnúmer 202506070Vakta málsnúmer

Fyrir liggur svar atvinnuvegaráðuneytisins, dagsett 27. maí 2026, við beiðni starfsmanns heimastjórnar um afrit af samskiptum ráðuneytisins og Bændasamtaka Íslands varðandi niðurfellingu Jökuldalslínu, ásamt tölvupósti ráðuneytisins til samtakanna frá 7. maí 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs lýsir yfir miklum vonbrigðum með stjórnsýslu og vinnubrögð atvinnuvegaráðuneytisins við ákvörðun um niðurfellingu Jökuldalslínu. Ákvörðunin er tekin án fullnægjandi rannsóknar og án samráðs við hagaðila og sveitarfélagið.

Aðferð ráðuneytisins, að líta á einn ósvaraðan tölvupóst til Bændasamtaka Íslands sem fullnægjandi samráð, stangast alvarlega á við vandaða stjórnsýsluhætti og rannsóknarskyldu stjórnvalda. Ákvörðun af þessari stærðargráðu, sem varðar búfjárvarnir og hagsmuni heillar byggðar, krefst ítarlegrar skoðunar á áhættu og raunverulegs samráðs áður en til ákvörðunartöku kemur.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs krefst þess að ráðuneytið taki ákvörðunina til endurskoðunar og efni til samráðs með hagsmunasamtökum bænda á svæðinu og fulltrúum sveitarfélagsins.

Starfsmanni heimastjórnar er falið að koma bókun þessari á framfæri við ráðuneytið við fyrsta tækifæri.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

13.Umsagnarbeiðni. Umhverfismatsskýrsla, Vindmyllur við Lagarfossvirkjun

Málsnúmer 202606047Vakta málsnúmer

Fyrir liggur mat á umhverfisáhrifum vegna áforma Orkusölunnar um að reisa tvær vindtúrbínur með allt að 9,9 MW framleiðslu við Lagarfoss. Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn sveitarfélagsins á grundvelli 23. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Frestur til athugasemda er til og með 17. júlí 2026. Þá liggja fyrir drög að umsögn verkefnastjóra skipulagsmála um málið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn verkefnastjóra skipulagsmála, en vill jafnframt að fram komi í umsögninni að heimastjórn telji að áformin muni hafa mikil neikvæð sjónræn áhrif víða á Fljótsdalshéraði, og einnig verði hljóðræn áhrif verulega neikvæð á nærsvæði. Heimastjórn bendir jafnframt á að samkvæmt samantekt umhverfisáhrifa í matsskýrslu séu öll atriði metin neikvæð.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs leggst gegn fyrirliggjandi áformum um uppbyggingu vindmylla við Lagarfoss.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

14.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, framkvæmdaáætlun 2026-

Málsnúmer 202603088Vakta málsnúmer

Heimastjórnum býðst að leggja fram tillögur inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum er varðar uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu.

Alda Marín Kristinsdóttir, verkefnastjóri atvinnumála, kemur inn á fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar Öldu Marín fyrir góða yfirferð og felur starfsmanni að útbúa samantekt um möguleg verkefni í samræmi við umræður á fundinum, og leggja fyrir næsta fund heimastjórnar til samþykktar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

15.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá fjölskylduráði um umsögn heimastjórnar Fljótsdalshéraðs varðandi tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur starfsmanni að skrifa umsögn í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir næsta fund heimastjórnar til samþykktar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

16.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júní 2026-maí 2027

Málsnúmer 202604259Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundadagatali sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna tímabilið júní 2026 til maí 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi fundadagatal fyrir sitt leyti.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 11:50.

Getum við bætt efni þessarar síðu?