Fara í efni

Heimastjórn Djúpavogs

71. fundur 26. júní 2026 kl. 10:00 - 13:30 á skrifstofu sveitarfélagsins, Djúpavogi
Nefndarmenn
  • Þórey Birna Jónsdóttir formaður
  • Oddný Anna Björnsdóttir aðalmaður
  • Dagur Hákon Rafnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Greta Mjöll Samúelsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
  • Eiður Ragnarsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Greta Mjöll Samúelsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Erindisbréf nefnda

2.Siðareglur kjörinna fulltrúa

3.Fjarskiptasamband í Skriðdal

Málsnúmer 202605014Vakta málsnúmer

Heimastjórn Djúpavogs vísar í bókun sína frá 10. apríl 2025, málsnr. 202502184 um stöðu fjarskiptamála á Austurlandi. Þar var bent á að stórbæta þurfi fjarskipti í gamla Djúpavogshreppi. Með niðurfellingu á 2G og 3G hefur ástand á fjarskiptamálum snarversnað bæði til sjós og lands.

Heimastjórn beinir því til sveitarstjórnar að krefjast úrbóta í fjarskiptamálum í sveitarfélaginu öllu sem allra fyrst, enda mikilvægt öryggismál fyrir íbúa og ferðamenn.

Samþykkt samhljóða.

4.Umferðaröryggi við Grunnskóla Djúpavogs

Málsnúmer 202606160Vakta málsnúmer

Erindi frá Þórdísi Sigurðardóttur varðandi umferðaröryggi við Grunnskóla Djúpavogs
Heimastjórn tekur undir með Þórdísi og leggur til að unnið verði að því að bæta umferðaröryggi og umhverfi við Grunnskóla Djúpavogs sem fyrst og felur starfsmanni að koma erindinu til umhverfis- og framkvæmdarráðs.

Samþykkt samhljóða

5.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júní 2026-maí 2027

Málsnúmer 202604259Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundardagskrá sveitarstjórnar, ráða og nefnda Múlaþings, júní - desember 2026
Heimastjórn Djúpavogs samþykkir að fastur fundartími heimastjórnar verði að jafnaði fyrsta fimmtudag hvers mánaðar eins og fram kemur í fundadagatali nefnda og ráða í Múlaþingi.

Samþykkt samhljóða.

6.Stýrihópur um framtíðarskipulag náttúrustofu

Málsnúmer 202605023Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu um skipun starfshóps sem falið er það hlutverk að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins.

7.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, framkvæmdaáætlun 2026-

Málsnúmer 202603088Vakta málsnúmer

Heimastjórnum býðst að leggja fram tillögur inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum er varðar uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu.

Alda Marín verkefnastjóri atvinnumála kemur inn á fundinn undir þessum lið.
Heimastjórn þakkar Öldu fyrir greinargóða yfirferð og felur starfsmanni að vinna verkefnið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Alda Marín Kristinnsdótttir

8.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings óskar hér með eftir umsögn heimastjórnar Djúpavogs um meðfylgjandi skjal, þar sem lagðar eru fram tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins.
Heimastjórn fagnar þessari vinnu og gerir ekki athugasemdir við tillögur starfshópsins.

Samþykkt samhljóða.

9.Cittaslow

Málsnúmer 202203219Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar skipunarbréf samráðshóps um Cittaslow á Djúpavogi.
Samráðshópur um Cittaslow á Djúpavogi er skipaður í kjölfar auglýsingar. Endanleg skipan er staðfest af heimastjórn og gildir til loka yfirstandandi kjörtímabils.
Heimastjórn felur starfsmanni að auglýsa og hvetur alla áhugasama til að sækja um sæti í samráðshópi um Cittaslow fyrir 20. júlí nk.

Samþykkt samhljóða.

10.Tónlistarkennsla á Djúpavogi

Málsnúmer 202606167Vakta málsnúmer

Erindi frá Írisi Birgisdóttur og Kristjáni Ingimarssyni varðandi tónlistarkennslu á Djúpavogi.
Heimastjórn tekur undir með bréfriturum og vísar erindinu til fjölskylduráðs. Heimastjórn hvetur til þess að tónlistarkennslu verði gert hærra undir höfði en verið hefur og henni skapaðar aðstæður til að þrífast og dafna á Djúpavogi.

Brýnt er að ráðið verði í auglýsta stöðu tónlistarkennara fyrir haustið.

Samþykkt samhljóða.

11.Minnisblað til heimastjórnar eftir íbúafundi samráðshóps og íbúasamtaka

Málsnúmer 202606168Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar; frá íbúasamtökum Djúpavogs og nærsveita og samráðshópi um Cittaslow minnisblað og erindi.
Heimastjórn þakkar fyrir frumkvæði samráðshóps um Cittaslow og íbúasamtaka Djúpavogs og nærsveita fyrir góða fundi og minnispunkta frá þeim.

Heimastjórn felur starfsmanni að taka saman punkta úr fundargerðum og minnisblaði. Þessi gögn verði höfð til hliðsjónar við skipulag og ákvarðanatöku í málefnum svæðisins til framtíðar.

Samþykkt samhljóða.

12.Mönnun i Íþróttamiðstöð Djúpavogs

Málsnúmer 202606164Vakta málsnúmer

Erindi frá Íbúasamtökum Djúpavogs og nærsveita um mönnun Íþróttamiðstöðvar Djúpavogs.
Heimastjórn Djúpavogs tekur heilshugar undir með íbúasamtökum Djúpavogs og bendir á að þetta mál hafi verið rætt áður, en engar úrbætur komið til framkvæmda.
Um er að ræða mikið öryggismál fyrir gesti Íþróttamiðstöðvar Djúpavogs allt árið um kring og mikilvægt er að brugðist verði við án tafar.

Heimastjórn vísar erindinu til fjölskylduráðs.

Samþykkt samhljóða.

13.Heilsársvegur um Öxi

Málsnúmer 202304027Vakta málsnúmer

Axarvegur, fyrirhugaðar framkvæmdir næstu ára.
Heimastjórn tekur undir bókun sveitarstjórnar frá 3. júní sl. og lýsir yfir miklum vonbrigðum með nýsamþykkta samgönguáætlun Alþingis.

Heimastjórn bendir á að gert er ráð fyrir framkvæmdum á Axarvegi á árunum 2027-2029, fyrir samtals 2.620 milljónir sem er einungis rúm 25% af áæætluðum heildarkostnaði við verkið. Ekki er gert ráð fyrir neinum fjármunum fyrir árið 2030 og eftirstöðvar verksins dreifast á annað tímabil samgönguáætlunar eftir árið 2031. Það er því ljóst að miðað við núverandi áætlun muni taka að lágmarki 6-8 ár að klára þessa mikilvægu samgöngubót sem er fullkomlega óviðunandi.

Einnig vill heimastjórn benda á að viðhald og þjónusta á núverandi vegi sé í algjörum ólestri, enn hafi vegurinn ekki verið heflaður þrátt fyrir að komið sé fram í lok júni og verulega skortir ofaníburð á löngum köflum.

Heimastjórn felur starfsmanni að kalla eftir fundi með Vegagerðinni og sveitarstjórn til að fara yfir viðhald og þjónustu á Axarvegi.

Samþykkt samhljóða.

14.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Djúpavogi

Málsnúmer 202209244Vakta málsnúmer

Markarland:
Framkvæmdir ganga vel og er verkið á áætlun, búið er að klára tengingar milli Búlands, Markarlands og Vogalands og er nú verið að vinna við tengingar við Brekku og neðsta part Markarlands.

Hitavatnsleit:
Til stendur að dýpka síðustu holu sem boruð var en verið er að bíða eftir búnaði í verkið, borunum á að ljúka fyrir haustið.

Borgarland:
Til stóð að setja malbik á efsta hluta Borgarlands í júní byrjun, en ákveðið var að fresta því og malbika þar á sama tíma og lagt verður malbik á Markarlandið, þegar framkvæmdum lýkur þar.

Eiður Ragnarsson lætur endanlega af störfum 30. júní næstkomandi, en hann hefur verið í hlutastarfi á móti nýjum fulltrúa sveitarstjóra, Gretu Mjöll Samúelsdóttur sem einnig hefur verið í hlutastarfi í júní.

15.Fundir Heimastjórnar Djúpavogs

Málsnúmer 202605192Vakta málsnúmer

Næsti fundur heimastjórnar Djúpvogs verður fimmtudaginn 6. ágúst í fjarfundi kl 10:00. Erindi fyrir fundinn þurfa að berast starfsmanni heimastjórnar fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 30. júlí á netfangið greta.mjoll.samuelsdottir@mulathing.is

Fundi slitið - kl. 13:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?