Fara í efni

Kristni og kristinfræði í grunnskólum og leikskólum Múlaþings

Málsnúmer 202605059

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Múlaþings - 68. fundur - 13.05.2026

Fyrir liggur beiðni frá Þresti Jónssyni sveitarstjórnarfulltrúa, dagsett 7. maí 2026, um að setja mál um kristni og kristinfræði í grunnskólum og leikskólum á dagskrá fundarins.
Til máls tóku: Þröstur Jónsson, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir sem beindi fyrirspurn til Þrastar, Hildur Þórisdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Eyþór Stefánsson sem beindi fyrirspurn til Þrastar, Þröstur Jónsson sem svaraði Ásrúnu Mjöll, Hildi, Helga Hlyni og Eyþóri.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings vísar málinu til umfjöllunar hjá fjölskylduráði.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 160. fundur - 19.05.2026

Á 68. fundi sveitarstjórnar, sem haldinn var 13. maí 2026, var erindi Þrastar Jónssonar, sveitarstjórnarfulltrúa, um kristni og kristinfræði í grunn- og leikskólum tekið til umfjöllunar. Sveitarstjórn vísaði málinu til frekari umfjöllunar hjá fjölskylduráði.
Fjölskylduráð þakkar Þresti Jónssyni fyrir erindið.

Gildandi hæfniviðmið Aðalnámskrár fyrir samfélagsgreinar taka meðal annars til siðferðs og trúar, þar sem fjallað er um grunngildi trúarbragða og menningar. Kristin trú er hluti af íslenskri menningu og hvetur ráðið skóla Múlaþings til að vinna áfram markvisst eftir þeim hæfniviðmiðum sem tryggja börnum þekkingarlegan grunn á menningu og siðferði eins og kveðið er á um í grunnskólalögum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

ÞJ lagði fram eftirfarandi bókun:
Bæti við bókun fjölskylduráðs að í 2. grein grunnskólalaga (markmið) er áréttað svo: „Starfshættir grunnskóla skulu mótast af umburðarlyndi og kærleika, kristinni arfleifð íslenskrar menningar, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi."
Getum við bætt efni þessarar síðu?