Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

191. fundur 16. júní 2026 kl. 08:30 - 11:33 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Jónína Brynjólfsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Guðlaugur Sæbjörnsson starfsmaður
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Atvinnumál í Múlaþingi

Málsnúmer 202511153Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fór yfir stöðu atvinnumála í Múlaþingi.
Lagt fram til kynningar.

3.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júní til desember 2026

Málsnúmer 202604259Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundadagatali sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna tímabilið júní 2026 til maí 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi fundadagatal fyrir sitt leyti.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Fasteignir Múlaþings í Brúarási

Málsnúmer 202605114Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun fjölskylduráðs Múlaþings frá 19. maí 2026 þar sem byggðaráð er hvatt til að endurskoða ákvörðun sína um sölu á einbýlishúsi í Brúarási. Byggðaráð tók málið fyrir á fundi 9. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings tekur undir bókun fjölskylduráðs Múlaþings og mun taka fasteignina af lista yfir húsnæði sem á að setja í söluferli.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Kæra á grundvelli sveitarstjórnarlaga. Niðurstaða kosningar til heimastjórnar Seyðisfjarðar

Málsnúmer 202605254Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar stjórnsýslukæra til innviðaráðuneytisins, dagsett 23. maí 2026, þar sem kærð er framkvæmd og niðurstaða kosningar til heimastjórnar á Seyðisfirði 2026, ásamt greinargerð formanns yfirkjörstjórnar Múlaþings vegna kærunnar.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:33.

Getum við bætt efni þessarar síðu?