Fara í efni

Tilkynning um eignaskerðingar vegna framkvæmda við Hafnarhólmaveg(947)

Málsnúmer 202605263

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 185. fundur - 15.06.2026

Þann 29. maí sl. barst sveitarfélaginu tilkynning frá Vegagerðinni, dags. 19. maí 2026, um eignaskerðingu vegna framkvæmda við Hafnarhólmaveg (947).
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir athugasemd við að vegstæði Vegagerðarinnar nái inn á gjaldtökusvæði við Hafnarhólma og leggur til að veghelgunarsvæðið verði minnkað um það sem því nemur.
Ráðið vísar erindinu einnig til umfjöllunar hjá heimastjórn Borgarfjarðar.

Verkefnastjóra skipulagsmála er falið að vinna umsögn til Vegagerðarinnar með ofangreint til hliðsjónar.

Samþykkt samhljóða.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 70. fundur - 25.06.2026

Á 185. fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs var til umræðu tilkynning frá Vegagerðinni um eignaskerðingu vegna framkvæmda við Hafnarhólmaveg (947). Umhverfis- og framkvæmdaráð gerði athugasemd við að vegstæði Vegagerðarinnar nái inn á gjaldtökusvæði við Hafnarhólma.
Ráðið óskar eftir umfjöllun heimastjórnar vegna tilkynningarinnar og mun verkefnastjóri skipulagsmála taka umfjöllunina til greina við gerð umsagnarinnar.
Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda kom inn á fundinn undir þessum lið.

Heimastjórn tekur undir bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs og gerir athugasemdir við að vegstæði Vegagerðarinnar nái inn á gjaldtökusvæðið við Hafnarhólma og leggur til að vegsvæðið verði minnkað um það sem því nemur, að stöðulínu 4680.
Heimastjórn felur starfsmanni að koma ofangreindri bókun á framfæri við verkefnastjóra skipulagsmála.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?