Fara í efni

Heimastjórn Borgarfjarðar

70. fundur 25. júní 2026 kl. 10:00 á skrifstofu sveitarfélagsins, Borgarfirði
Nefndarmenn
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir formaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson aðalmaður
  • Óttar Már Kárason aðalmaður
Starfsmenn
  • Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Siðareglur kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 202605238Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar siðareglur kjörinna fulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

2.Erindisbréf nefnda

Málsnúmer 202606063Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar erindisbréf heimastjórna Múlaþings sem samþykkt voru á fundi sveitarstjórnar 3. júní síðastliðinn.
Lagt fram til kynningar.

3.Fjarðarborg, húsnefnd

Málsnúmer 202606102Vakta málsnúmer

Samkvæmt erindisbréfi heimastjórnar Borgarfjarðar fer hún með verkefni stjórnar félagsheimilisins Fjarðarborgar í samræmi við samþykktir sem samþykktar voru af byggðaráði 1. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

4.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júní 2026-maí 2027

Málsnúmer 202604259Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundadagatali sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna tímabilið júní 2026 til maí 2027.

Heimastjórn Borgarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi fundadagatal fyrir sitt leyti. Heimastjórn mun alla jafna funda fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Tilkynning um eignaskerðingar vegna framkvæmda við Hafnarhólmaveg (947)

Málsnúmer 202605263Vakta málsnúmer

Á 185. fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs var til umræðu tilkynning frá Vegagerðinni um eignaskerðingu vegna framkvæmda við Hafnarhólmaveg (947). Umhverfis- og framkvæmdaráð gerði athugasemd við að vegstæði Vegagerðarinnar nái inn á gjaldtökusvæði við Hafnarhólma.
Ráðið óskar eftir umfjöllun heimastjórnar vegna tilkynningarinnar og mun verkefnastjóri skipulagsmála taka umfjöllunina til greina við gerð umsagnarinnar.
Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda kom inn á fundinn undir þessum lið.

Heimastjórn tekur undir bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs og gerir athugasemdir við að vegstæði Vegagerðarinnar nái inn á gjaldtökusvæðið við Hafnarhólma og leggur til að vegsvæðið verði minnkað um það sem því nemur, að stöðulínu 4680.
Heimastjórn felur starfsmanni að koma ofangreindri bókun á framfæri við verkefnastjóra skipulagsmála.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Stýrihópur um framtíðarskipulag náttúrustofu

Málsnúmer 202605023Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu um skipun starfshóps sem falið er það hlutverk að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins.
Lagt fram til kynningar.

7.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá fjölskylduráði um umsögn heimastjórnar Borgarfjarðar varðandi tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins.
Í upphafi máls vakti Óttar Már athygli á mögulegu vanhæfi sínu. Var það borið upp og fellt samhljóða með handauppréttingu.
Heimastjórn felur starfsmanni að afla frekari gagna í samræmi við umræður á fundinum.
Málinu frestað.

8.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, framkvæmdaáætlun 2026-

Málsnúmer 202603088Vakta málsnúmer

Heimastjórnum býðst að leggja fram tillögur inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum er varðar uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu.
Heimastjórn felur starfsmanni að vinna tillögur í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir á næsta fundi.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

9.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Borgarfirði

Málsnúmer 202605188Vakta málsnúmer

Búið er að opna veginn til Loðmundarfjarðar.

Vinna við gangstéttar ætti að hefjast í næstu viku. Jafnframt verða bílastæðin við Fjarðarborg og Hafnarhólma máluð.

Framkvæmdir í höfninni dragast því miður enn um sinn. Timbursending sem beðið hefur verið eftir er áætluð í fyrstu viku júlí.

HEF veitur hafa undanfarið unnið að endurnýjun vatnslagna í þorpinu og þakka íbúum biðlundina.

Dyrfjallahlaup verður haldið laugardaginn 4. júlí næstkomandi og gengur undirbúningur hjá UMFB og björgunarsveitinni Sveinunga vel.

Skrifstofa Múlaþings á Borgarfirði verður lokuð 6. til 31. júlí vegna sumarfrís starfsfólks. Starfsfólk þjónustumiðstöðvar tekur einnig sumarfrí á þessum tíma svo starfsemi verður skert en alltaf verður einhver við til að sjá um vigtun sjávarafla og önnur brýn verkefni. Kjartan Ólason hefur verið ráðinn sem sérlegur slátturmaður.

10.Fundir Heimastjórnar Borgarfjarðar

Málsnúmer 202605187Vakta málsnúmer

Næsti fundur heimastjórnar verður haldinn mánudaginn 10. ágúst 2026. Erindi fyrir fundinn þurfa að berast fyrir kl. 12:00 fimmtudaginn 6. ágúst. Erindi skal senda á netfangið alda.kristinsdottir@mulathing.is eða bréfleiðis til skrifstofu.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni þessarar síðu?