Fara í efni

Fundir umhverfis- og framkvæmdaráðs 2026-2030

Málsnúmer 202606013

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 184. fundur - 08.06.2026

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur tillaga að fundarskipulagi fyrir næsta kjörtímabil.
Eftifarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fundað verði öllu jafna þrisvar í mánuði utan sumar- og jólafría, alla jafna ekki í þeim vikum sem sveitarstjórn fundar.
Fundir verða að jafnaði á mánudögum. Fjarfundir hefjast kl. 13:00 en tímasetning sem og staðsetning staðfunda verður ákveðin í hvert skipti.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 192. fundur - 14.09.2026

Næsti fundur umhverfis- og framkvæmdaráðs, mánudaginn 21. september verður staðfundur, haldinn á Seyðisfirði.
Lagt fram til kynningar.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 193. fundur - 21.09.2026

Formaður umhverfis- og framkvamdaráðs leggur til kynningar og umræðu reglur kjörinna fulltrúa varðandi vanhæfi í umræðum á fundi.

Um vanhæfi kjörinna fulltrúa Múlaþings gilda skýrar lagareglur, bæði við umfjöllun í sveitarstjórn og í ráðum, nefndum og heimastjórnum. Þar skal litið til 20.gr. sveitastjórnarlaga nr. 138/2011, 3.-5. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 17. gr. samþykktar um stjórn Múlaþings.
Lagt fram til kynningar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?