Fara í efni

Umsagnarbeiðni. Umhverfismatsskýrsla, Vindmyllur við Lagarfossvirkjun

Málsnúmer 202606047

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 70. fundur - 24.06.2026

Fyrir liggur mat á umhverfisáhrifum vegna áforma Orkusölunnar um að reisa tvær vindtúrbínur með allt að 9,9 MW framleiðslu við Lagarfoss. Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn sveitarfélagsins á grundvelli 23. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Frestur til athugasemda er til og með 17. júlí 2026. Þá liggja fyrir drög að umsögn verkefnastjóra skipulagsmála um málið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn verkefnastjóra skipulagsmála, en vill jafnframt að fram komi í umsögninni að heimastjórn telji að áformin muni hafa mikil neikvæð sjónræn áhrif víða á Fljótsdalshéraði, og einnig verði hljóðræn áhrif verulega neikvæð á nærsvæði. Heimastjórn bendir jafnframt á að samkvæmt samantekt umhverfisáhrifa í matsskýrslu séu öll atriði metin neikvæð.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs leggst gegn fyrirliggjandi áformum um uppbyggingu vindmylla við Lagarfoss.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 187. fundur - 29.06.2026

Fyrir liggur mat á umhverfisáhrifum vegna áforma Orkusölunnar um að reisa tvær vindtúrbínur með allt að 9,9 MW framleiðslu við Lagarfoss. Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun óskaði eftir umsögn sveitarfélagsins á grundvelli 23. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 með fresti til athugasemda til og með 17. júlí 2026.
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs afgreiddi málið á fundi sínum þann 25. júní síðast liðinn og er afgreiðsla hennar lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.


Fulltrúar V-lista leggja fram eftirfarandi bókun:
VG og óháð taka undir þær athugasemdir sem fram koma í umsögn heimastjórnar Fljótsdalshéraðs um umhverfismatsskýrslu vegna fyrirhugaðra vindtúrbína við Lagarfossvirkjun, meðal annars varðandi skort á heildstæðu mati á verndargildi svæðisins, samfélagsáhrifum og samráði við íbúa áhrifasvæðisins.

VG og óháð telja þó að ganga þurfi lengra í mati á áhrifum framkvæmdarinnar, sérstaklega með tilliti til áhrifa á fuglalíf innan mikilvægs fuglasvæðis á Úthéraði, samlegðaráhrifa annarra fyrirhugaðra orkuframkvæmda og áhrifa á landslag, víðerni og náttúruupplifun á Austurlandi.

Með vísan til varúðarreglu náttúruverndar telja VG og óháð að veruleg óvissa sé enn til staðar um umhverfisáhrif framkvæmdarinnar og leggjast því gegn fyrirhugaðri uppbyggingu. VG og óháð munu jafnframt skila inn sérstakri umsögn þar sem þessi sjónarmið verða útlistuð.
Getum við bætt efni þessarar síðu?