Fara í efni

Tónlistarkennsla á Djúpavogi

Málsnúmer 202606167

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Djúpavogs - 71. fundur - 26.06.2026

Erindi frá Írisi Birgisdóttur og Kristjáni Ingimarssyni varðandi tónlistarkennslu á Djúpavogi.
Heimastjórn tekur undir með bréfriturum og vísar erindinu til fjölskylduráðs. Heimastjórn hvetur til þess að tónlistarkennslu verði gert hærra undir höfði en verið hefur og henni skapaðar aðstæður til að þrífast og dafna á Djúpavogi.

Brýnt er að ráðið verði í auglýsta stöðu tónlistarkennara fyrir haustið.

Samþykkt samhljóða.

Fjölskylduráð Múlaþings - 164. fundur - 17.08.2026

Á fundi heimastjórnar 26. júní sl. vísaði heimastjórn erindi frá Írisi Birgisdóttur og Kristjáni Ingimarssyni, um tónlistarkennslu á Djúpavogi, til fjölskylduráðs. Heimastjórn hvetur til þess að tónlistarkennslu verði gert hærra undir höfði en verið hefur og skapaðar verði góðar aðstæður fyrir hana til að þrífast og dafna á Djúpavogi.
Fjölskylduráð þakkar fyrir erindið og tekur undir mikilvægi tónlistarkennslu á Djúpavogi. Málið er í vinnslu með skólastjórnanda.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?