Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

164. fundur 17. ágúst 2026 kl. 09:00 - 11:25 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Erlingur Hjörvar Guðjónsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Erla Gunnlaugsdóttir varamaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir varamaður
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Stefanía Malen Stefánsdóttir grunnskólafulltrúi
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði
Áheyrnarfulltrúi tónlistarskóla Sóley Þrastardóttir sat lið 1. Áheyrnarfulltrúar grunnskóla Ásgrímur Ingi Arngrímsson og Karen Sveinsdóttir sátu lið 2. Áheyrnarfulltrúar leikskóla Hugrún Malmquist Jónsdóttir, Kolbrún Nanna Magnúsdóttir og Ása Karen Hannibalsdóttir sátu liði 3 - 4. Skólastjórarnir Guðrún Sigríður Sigurðardóttir og Þorbjörg Sandholt fylgdu eftir liðum sinna skóla.

1.Tónlistarkennsla á Djúpavogi

Málsnúmer 202606167Vakta málsnúmer

Á fundi heimastjórnar 26. júní sl. vísaði heimastjórn erindi frá Írisi Birgisdóttur og Kristjáni Ingimarssyni, um tónlistarkennslu á Djúpavogi, til fjölskylduráðs. Heimastjórn hvetur til þess að tónlistarkennslu verði gert hærra undir höfði en verið hefur og skapaðar verði góðar aðstæður fyrir hana til að þrífast og dafna á Djúpavogi.
Fjölskylduráð þakkar fyrir erindið og tekur undir mikilvægi tónlistarkennslu á Djúpavogi. Málið er í vinnslu með skólastjórnanda.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Tölustafir innleiddir í stað bókstafa í grunnskólum

Málsnúmer 202608069Vakta málsnúmer

Mennta- og barnamálaráðuneytið hrindir í framkvæmd breytingum á námsmati í grunnskólum frá og með skólaárinu 2026-2027. Breytingarnar verða innleiddar í tveimur áföngum. Fyrsti áfangi tekur formlega gildi vorið 2027 og nær til lokamats í 10. bekk, en undirbúningur hefst haustið 2026. Annar áfangi tekur formlega gildi vorið 2028 og nær til lokamats í 4. og 7. bekk.
Sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu er falið að taka saman umsögn um breytingarnar sem og vinnulagið fyrir hönd sveitarfélagsins, í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Leikskólinn Bjarkatún. Beiðni um viðbótarfjármagn vegna stuðningsþarfa haust 2026.

Málsnúmer 202608014Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni um viðbótarfjármagn vegna stuðningsþarfa barna á haustönn 2026.
Fjölskylduráð samþykkir beiðni skólastjóra Bjarkatúns.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Mannauðsmál í leikskólum 2026-2027

Málsnúmer 202608071Vakta málsnúmer

Við upphaf skólaárs er hér lagt fram yfirlit yfir stöðu mönnunar í leikskólum Múlaþings. Gerð er grein fyrir stöðu ráðninga, lausum störfum og helstu áskorunum sem tengjast mönnun við upphaf skólaárs.
Sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu kynnti stöðu ráðninga í leikskólum Múlaþings. Gengið hefur nokkuð vel að ráða í stöður leikskólanna. Staðan er þó erfið í Tjarnarskógi þar sem ekki hefur tekist að tryggja nægilega mönnun og því ekki hægt að hefja aðlögun yngsta hópsins að svo stöddu.

Málið verður tekið fyrir að nýju.

5.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu.
Lagt fram til kynningar.

6.Kynning á verkefninu Föruneyti barna.

Málsnúmer 202606038Vakta málsnúmer

Guðmunda Vala Jónasdóttir, skólastjóri Hádegishöfða, kom inn á fund og kynnti verkefnið Föruneyti barna.
Fjölskylduráð þakkar fyrir upplýsandi kynningu.

Fundi slitið - kl. 11:25.

Getum við bætt efni þessarar síðu?