Fara í efni

Minnisblað til heimastjórnar eftir íbúafundi samráðshóps og íbúasamtaka

Málsnúmer 202606168

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Djúpavogs - 71. fundur - 26.06.2026

Lagt fram til kynningar; frá íbúasamtökum Djúpavogs og nærsveita og samráðshópi um Cittaslow minnisblað og erindi.
Heimastjórn þakkar fyrir frumkvæði samráðshóps um Cittaslow og íbúasamtaka Djúpavogs og nærsveita fyrir góða fundi og minnispunkta frá þeim.

Heimastjórn felur starfsmanni að taka saman punkta úr fundargerðum og minnisblaði. Þessi gögn verði höfð til hliðsjónar við skipulag og ákvarðanatöku í málefnum svæðisins til framtíðar.

Samþykkt samhljóða.

Heimastjórn Djúpavogs - 72. fundur - 06.08.2026

Fyrir liggur minnisblað til heimastjórnar eftir íbúafundi samráðshóps um Cittaslow og Íbúasamtaka Djúpavogs og nærsveita.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn svarar ákalli íbúa um að leiða vinnu við gerð samfélagssáttmála í samstarfi við nýjan samráðshóp um Cittaslow og Íbúasamtök Djúpavogs og nærsveita.
Starfsmanni falið að boða fulltrúa hópanna tveggja á fund heimastjórnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?