Málsnúmer 202209244Vakta málsnúmer
Markarland:
Síðasti áfangi vinnunnar hófst eftir verslunarmannahelgi.
Verkið er á eftir upphaflegri verkáætlun og vonast til að því ljúki bráðlega. Gert er ráð fyrir að lagt verði malbik á götuna um miðjan september ásamt efsta hluta Borgarlands.
Vegslóðar og styrkvegasjóður:
Á síðasta ári var farið í viðhald á slóðum inn í Hamarsdal og Bragðavalladal. Nú er fyrirhugað að fara í viðhald á slóðum inn í Geithellnadal og Flugustaðadal. Verklok fyrir áramót.
Viðbygging leikskólans:
Austurbygg hóf jarðvinnu á fyrirhugaðri rúmlega 100 fermetra viðbyggingu leikskólans. Áætluð verklok eru næsta sumar. Byggingarsvæðið hefur nú verið girt af og fólk beðið að sýna tilitsemi á meðan á framkvæmdum stendur.
Skemmtiferðaskip:
Koma skemmtiferðaskipa hefur gengið vel. Enn eiga 8 skip eftir að koma og er það síðasta á áætlun 20. september.
Flotbryggja:
Búið er að ganga frá nýrri flotbryggju í smábátahöfninni.
Menning:
Sjómannadagurinn á Djúpavogi fór vel fram þrátt fyrir erfitt veður.
17. júní var aflýst vegna veðurs. Von er um að íbúar geri sér glaðan dag með Neista í sumar.
Ars Longa opnaði sýningu Rúllandi snjóbolta 19 þann 27. júní með pompi og prakt. Menningarráðherra var heiðursgestur og opnunin vel sótt. Sýningin var opin til 2. ágústs.
BMX brós mættu í heimsókn á bílaplanið við Djúpavogskirkju fimmtudaginn 16. júlí og héldu sýningu og námskeið. Fengu þeir góðar móttökur íbúa.
Leikhópurinn Lotta sýndi sýningu sýna Litaland á Neistavelli, Djúpavogi, 20. júlí og var sýningin vel sótt.
Starfsmanni falið að uppfæra núverandi vinnuskjal heimastjórnar í samræmi við umræður á fundinum og skila til sviðsstjóra fjármála.