Fara í efni

Deiliskipulagsbreyting, Úlfsstaðaholt

Málsnúmer 202607003

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 188. fundur - 06.07.2026

Fyrir liggur umsókn frá Austurbygg verktaka ehf. um óverulega breytingu á deiliskipulagi Úlfsstaðaholts, frístundabyggðar í landi Úlfsstaða. Breytingin felur m.a. í sér aukið byggingarmagn á lóðum og breytingu á skilmálum um hámarks vegg- og mænishæð húsa.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi umsókn og að málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málið verður tekið fyrir að nýju þegar tillaga skipulagsbreytingar liggur fyrir og afstaða tekin til grenndarkynningar samhliða þeirri afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?