Fara í efni

Umsókn um stækkun á lóð, Hlíð 3

Málsnúmer 202607004

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 188. fundur - 06.07.2026

Fyrir liggur umsókn um 50m2 stækkun á lóðinni Hlíð 3 (L159233) á Djúpavogi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að óska eftir umsögn frá lóðarhafa Hlíð 1.
Málið verður tekið fyrir að nýju.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 191. fundur - 31.08.2026

Málið er lagt fyrir umhverfis- og framkvæmdaráð að nýju að lokinni umsagnarbeiðni til eigenda aðliggjandi lóðar, Hlíð 1 (L186719), vegna umsóknar um stækkun lóðar að Hlíð 3 (L159233).

Við yfirferð málsins hefur komið í ljós að afmörkun aðliggjandi lóðar, Hlíð 1, er ekki rétt skráð í landeignaskrá og þarfnast leiðréttingar. Samkvæmt þeim gögnum sem nú liggja fyrir ná lóðarmörk að Hlíð 1, 6 m frá húsi að lóðarmörkum Hlíðar 3. Bil milli lóðanna er því ekki 2 metrar, eins og áður var talið, heldur að hámarki um 1 metri.

Með hliðsjón af þeim upplýsingum sem fram hafa komið er málið lagt fyrir ráðið að nýju til afgreiðslu.
Jafnframt liggur fyrir að leiðrétta þurfi skráningu lóðarmarka vegna Hlíðar 1 í samræmi við fyrirliggjandi gögn um afmörkun lóðarinnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til þeirra upplýsinga sem fram hafa komið við nánari yfirferð málsins, hafnar umhverfis- og framkvæmdaráð umsókn um stækkun lóðarinnar að Hlíð 3 (L159233). Fyrir liggur að það landsvæði sem umsóknin tekur til er að hluta innan réttrar afmörkunar fyrir Hlíð 1 (L186719) og að bil milli lóðanna er minna en áður var talið.

Jafnframt samþykkir ráðið að afmörkun lóðar umhverfis Hlíð 1 (L186719) verði leiðrétt í landeignaskrá í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Starfsmönnum er falið að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?