Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

191. fundur 31. ágúst 2026 kl. 13:00 - 16:25 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Þórhallur Borgarsson aðalmaður
  • Þórir Stefánsson aðalmaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Yfirhafnavörður í Múlaþingi, Rúnar Gunnarsson, og hafnastjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sátu fundinn undir liðum 1.-5.

Verkefnastjóri skipulagsmála, Sóley Valdimarsdóttir, sat fundinn undir liðum 6.-9.

1.Skýrsla hafnastjóra, 2026

Málsnúmer 202601063Vakta málsnúmer

Hafnastjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, fer yfir stöðu verkefna hjá höfnum Múlaþings.
Lagt fram til kynningar.

2.Komur skemmtiferðaskipa í Múlaþingi 2026 og 2027

Málsnúmer 202608157Vakta málsnúmer

Hafnastjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, ásamt yfirhafnaverði, Rúnari Gunnarssyni, fara yfir tölfræði vegna koma skemmtiferðaskipa í Múlaþingi sumarið 2026.
Lagt fram til kynningar.

3.Umhverfishönnun á hafnasvæði Djúpavogs

Málsnúmer 202608177Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að taka afstöðu til að setja af stað vinnu við gerð umhverfishönnunar á hafnasvæði á Djúpavogi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að setja af stað vinnu við umhverfishönnun svæðisins. Sviðsstjóra framkvæmda er falið að fylgja verkefninu eftir í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

4.Fundargerðir stjórnar Hafnasamband Íslands 2026

Málsnúmer 202601221Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð 483. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands.
Lagt fram til kynningar.

5.Erindi, byggingarleyfisumsókn Kaldvíkur á Seyðisfirði og strandssvæðisskipulag austfjarða

Málsnúmer 202608121Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi frá fulltrúa í ráðinu, Ásrúnu Mjöll Stefánsdóttur V-lista.
Óskað er eftir að umhverfis- og framkvæmdaráð taki til umfjöllunar stöðu strandsvæðisskipulags Austfjarða hvað Seyðisfjörð varðar og fyrirliggjandi byggingarleyfisumsóknir vegna fyrirhugaðs sjókvíaeldis í firðinum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð sér ekki ástæðu til að bóka um málið, enda er málið í farvegi hjá því stjórnvaldi sem fer með forræði í slíkum málum, en sveitarfélagið hefur veitt umsagnir þegar eftir því hefur verið óskað.

Samþykkt með 5 atkvæðum, 2 á móti (GB V-lista og ÁMS V-lista).


Fulltrúar V-lista, Glúmur Björnsson og Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, geta ekki tekið undir að nægilegt sé að vísa til þess að málið sé í farvegi hjá öðru stjórnvaldi. Tillaga að rekstrarleyfi var auglýst 12. desember 2024 og athugasemdafrestur rann út 20. janúar 2025. Samkvæmt lögum bar Matvælastofnun að taka ákvörðun innan fjögurra vikna frá lokum þess frests, en leyfisferlinu er enn ólokið.

Frá staðfestingu strandsvæðaskipulagsins hafa jafnframt komið fram ný gögn og veruleg álitaefni um valkostagreiningu og umhverfismat, ofanflóðahættu og slysasleppingar, netlög og lögvarin réttindi, auk þess sem gögn byggingarleyfismála hafa tekið breytingum. Veðurstofan hefur m.a. staðfest að hætta á slysasleppingum vegna ofanflóða hafi ekki verið sérstaklega metin í hættumatinu.

Sveitarfélaginu er samkvæmt 14.gr. laga nr. 88/2018 sérstaklega heimilt að kalla eftir endurskoðun strandsvæðaskipulags og strandsvæðaskipulag nær samkvæmt lögunum frá netlögum ekki inn fyrir þau. Þegar uppi eru rökstudd álitaefni um að fyrirhuguð starfsemi og takmarkanir henni tengdar nái inn á netlög verður sveitarfélagið að okkar mati að gæta eigin hagsmuna en bíða ekki bara afgreiðslu annars stjórnvalds.

6.Tilraunaborun eftir heitu vatni á Borgarfirði 2026

Málsnúmer 202608030Vakta málsnúmer

Í upphafi máls vakti Glúmur Björnsson (V-lista), máls á mögulegu vanhæfi sínu og færði rök fyrir því. Formaður bar tillöguna upp til atkvæðagreiðslu og var hún samþykkt samhljóða.
GB vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Fyrir liggja upplýsingar um tilraunaboranir HEF veitna á Borgarfirði, en verkefnið hefur fengið styrk úr Orkusjóði. Stefnt er að því að bora 4-5 borholur í dreifbýli og eina við Sparkhöllina. Verkið kallar ekki á gerð borplana eða vegslóða.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðar tilraunaboranir. Lögð er áhersla á að framkvæmdaraðili upplýsi íbúa í þéttbýlinu og Heilbrigðiseftirlit Austurlands um fyrirkomulag framkvæmda, með hliðsjón af reglugerð 724/2008 um hávaða.
Vísað til kynningar hjá heimastjórn Borgarfjarðar.

Samþykkt samhljóða.

7.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Auglýsing nýs Aðalskipulags Múlaþins 2025-2045 stóð yfir frá 22. maí til 13. júlí 2026. 38 umsagnir bárust og liggur fyrir ráðinu að taka afstöðu til þeirra.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela fulltrúa meirihluta, Þórhalli Borgarssyni (D-lista) og fulltrúa minnihluta Hannesi Karli Hilmarssyni (M-lista), að vinna drög að umsögnum um athugasemdir ásamt starfsfólki.
Málið verður tekið fyrir að nýju þegar umsögnin liggur fyrir.

Samþykkt samhljóða.

8.Umsókn um stækkun á lóð, Hlíð 3

Málsnúmer 202607004Vakta málsnúmer

Málið er lagt fyrir umhverfis- og framkvæmdaráð að nýju að lokinni umsagnarbeiðni til eigenda aðliggjandi lóðar, Hlíð 1 (L186719), vegna umsóknar um stækkun lóðar að Hlíð 3 (L159233).

Við yfirferð málsins hefur komið í ljós að afmörkun aðliggjandi lóðar, Hlíð 1, er ekki rétt skráð í landeignaskrá og þarfnast leiðréttingar. Samkvæmt þeim gögnum sem nú liggja fyrir ná lóðarmörk að Hlíð 1, 6 m frá húsi að lóðarmörkum Hlíðar 3. Bil milli lóðanna er því ekki 2 metrar, eins og áður var talið, heldur að hámarki um 1 metri.

Með hliðsjón af þeim upplýsingum sem fram hafa komið er málið lagt fyrir ráðið að nýju til afgreiðslu.
Jafnframt liggur fyrir að leiðrétta þurfi skráningu lóðarmarka vegna Hlíðar 1 í samræmi við fyrirliggjandi gögn um afmörkun lóðarinnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til þeirra upplýsinga sem fram hafa komið við nánari yfirferð málsins, hafnar umhverfis- og framkvæmdaráð umsókn um stækkun lóðarinnar að Hlíð 3 (L159233). Fyrir liggur að það landsvæði sem umsóknin tekur til er að hluta innan réttrar afmörkunar fyrir Hlíð 1 (L186719) og að bil milli lóðanna er minna en áður var talið.

Jafnframt samþykkir ráðið að afmörkun lóðar umhverfis Hlíð 1 (L186719) verði leiðrétt í landeignaskrá í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Starfsmönnum er falið að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

9.Umhverfishönnun, Djúpivogur, Bláin og tenging við tjaldsvæði

Málsnúmer 202502194Vakta málsnúmer

Í upphafi máls vakti Þórir Stefánsson (D-lista), máls á mögulegu vanhæfi sínu og færði rök fyrir því. Formaður bar tillöguna upp til atkvæðagreiðslu og samþykkt samhljóða.
ÞS vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu málsins.


Grenndarkynningu vegna stofnunar lóðar fyrir hleðslustöð í Blánni Djúpavogi lauk þann 27. júlí sl.

Athugasemdir bárust við grenndarkynninguna og liggur fyrir ráðinu að taka afstöðu til þeirra.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð telur að með fyrirliggjandi umhverfishönnun sé tekið tillit til þeirra sjónarmiða sem fram koma í athugasemdum íbúa og snúa að umferðaröryggi og aðgengi. Tillagan felur í sér skýrari afmörkun bílastæða, akstursleiða og gönguleiða auk þess sem aðstaða fyrir hraðhleðslustöð er færð inn í skipulagt form. Markmiðið er að bæta umferðarstýringu, auka öryggi og draga úr óreiðu á svæðinu.
Að því virtu samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð stofnun lóðarinnar og að henni verði úthlutað til Tesla fyrir uppsetningu hraðhleðslustöðvar.

Samþykkt samhljóða.

10.Framtíðaruppbygging Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202511028Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð starfshóps íþróttamannvirkja á Egilsstöðum þann 26. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Múlaþings - 38

Málsnúmer 2608016FVakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð frá 38. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:25.

Getum við bætt efni þessarar síðu?