Fara í efni

Rekstur - Langabúð Djúpavogi

Málsnúmer 202607139

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Djúpavogs - 72. fundur - 06.08.2026

Fyrir liggur uppsögn á rekstrarleigusamningi Löngubúðar á Djúpavogi frá og með 31.12.2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Heimastjórn felur starfsmanni að auglýsa eftir nýjum rekstraraðila.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Byggðaráð Múlaþings - 196. fundur - 18.08.2026

Fyrir liggur uppsögn á rekstarleigusamningi Löngubúðar á Djúpavogi frá og með 31. desember 2026. Málið var tekið fyrir á fundi heimastjórnar Djúpavogs 6. ágúst 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Elsa Guðný Björgvinsdóttir, deildarstjóri menningarmála.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 200. fundur - 22.09.2026

Fyrir liggur uppsögn á rekstarleigusamningi Löngubúðar á Djúpavogi frá og með 31. desember 2026. Málið var tekið fyrir á fundi byggðaráðs 18. ágúst 2026.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 201. fundur - 06.10.2026

Fyrir liggja drög að útboðslýsingu vegna reksturs í Löngubúð á Djúpavogi. Núverandi rekstraraðili hefur sagt upp samningi frá og með 31. desember 2026. Málið var tekið fyrir á fundi byggðaráðs 22. september 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að auglýsa eftir rekstraraðila í Löngubúð á Djúpavogi til tveggja ára frá 1. janúar 2027 með möguleika á framlengingu á grundvelli framlagðra draga að útboðslýsingu. Sveitarstjóra falið að auglýsa og leggja málið að nýju fyrir byggðaráð þegar umsóknir liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?