Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

196. fundur 18. ágúst 2026 kl. 08:30 - 11:52 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Guðlaugur Sæbjörnsson starfsmaður
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Í vinnslu.

3.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2026 til 2029. Viðauki 2

Málsnúmer 202608073Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna breytingar á reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Breytingarnar fela í sér endurskoðun á málaflokkum og deilda innan þeirra, og kalla á að málaflokkar og deildir í bókhaldi sveitarfélagsins verði uppfærðar til samræmis.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögu að viðauka 2 sem felur í sér tilfærslu tekna og gjalda á milli málaflokka í samræmi við breytingar á reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Breytingarnar hafa ekki áhrif á heildarútgjöld sveitarfélagsins heldur eingöngu á flokkun tekna og gjalda milli málaflokka.

Helstu áhrif breytinganna á málaflokka eru eftirfarandi:

Málaflokkur 01 Málefni fatlaðs fólks: Nettóútgjöld aukast um 703,9 m.kr. vegna tilfærslu verkefna frá málaflokki 02 Félagsþjónustu.

Málaflokkur 02 Félagsþjónusta: Nettóútgjöld lækka um 703,9 m.kr. vegna tilfærslu verkefna í málaflokk 01 Málefni fatlaðs fólks.

Málaflokkur 08 Úrgangsmál: Nettóútgjöld lækka um 8,6 m.kr. vegna tilfærslu heilbrigðiseftirlits og dýraeftirlits í málaflokk 11 Umhverfis- og atvinnumál.

Málaflokkur 09 Skipulags- og samgöngumál: Nettóútgjöld aukast um 600,2 m.kr. vegna sameiningar við málaflokk 10 Umferðar- og samgöngumál.

Málaflokkur 10 Umferðar- og samgöngumál: Nettóútgjöld lækka um 600,2 m.kr. vegna tilfærslu verkefna í málaflokk 09 Skipulags- og samgöngumál.

Málaflokkur 11 Umhverfis- og atvinnumál: Nettóútgjöld aukast um 138,8 m.kr. vegna tilfærslu verkefna frá málaflokki 13 Atvinnumál og frá málaflokki 08 Úrgangsmál.

Málaflokkur 13 Atvinnumál: Nettóútgjöld lækka um 130,2 m.kr. vegna tilfærslu verkefna í málaflokk 11 Umhverfis- og atvinnumál.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Rekstur, Langabúð Djúpavogi

Málsnúmer 202607139Vakta málsnúmer

Fyrir liggur uppsögn á rekstarleigusamningi Löngubúðar á Djúpavogi frá og með 31. desember 2026. Málið var tekið fyrir á fundi heimastjórnar Djúpavogs 6. ágúst 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Elsa Guðný Björgvinsdóttir, deildarstjóri menningarmála.
Í vinnslu.

5.Faghópur um úthlutun menningarstyrkja

Málsnúmer 202606200Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að skipa þarf fulltrúa byggðaráðs í faghóp um úthlutun menningarstyrkja. Faghópurinn er skipaður deildarstjóra menningarmála, aðila úr byggðaráði og aðila úr fjölskylduráði. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Elsa Guðný Björgvinsdóttir, deildarstjóri menningarmála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings skipar Þórhildi Katrínu Stefánsdóttur sem fulltrúa ráðsins í faghópi um úthlutun menningarstyrkja.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Menningarstefna Austurlands

Málsnúmer 202608055Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá Austurbrú, dagsett 15. júlí 2026, um umsögn sveitarfélagsins við gerð menningarstefnu Austurlands. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Elsa Guðný Björgvinsdóttir, deildarstjóri menningarmála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Elsu Guðnýju fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Deildarstjóra menningarmála falið að skila umsögn til Austurbrúar í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202608038Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður 21. ágúst 2026 kl. 13.00.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að Jónína Brynjólfsdóttir fari með atkvæði Múlaþings á aðalfundi Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður 21. ágúst 2026.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

8.Fundagerðir Austurbrúar 2026

Málsnúmer 202601174Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Austurbrúar frá 19. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Fundagerðir SSA 2026

Málsnúmer 202601173Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 19. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:52.

Getum við bætt efni þessarar síðu?