Fara í efni

Tilraunaborun eftir heitu vatni á Borgarfirði 2026

Málsnúmer 202608030

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 191. fundur - 31.08.2026

Í upphafi máls vakti Glúmur Björnsson (V-lista), máls á mögulegu vanhæfi sínu og færði rök fyrir því. Formaður bar tillöguna upp til atkvæðagreiðslu og var hún samþykkt samhljóða.
GB vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Fyrir liggja upplýsingar um tilraunaboranir HEF veitna á Borgarfirði, en verkefnið hefur fengið styrk úr Orkusjóði. Stefnt er að því að bora 4-5 borholur í dreifbýli og eina við Sparkhöllina. Verkið kallar ekki á gerð borplana eða vegslóða.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðar tilraunaboranir. Lögð er áhersla á að framkvæmdaraðili upplýsi íbúa í þéttbýlinu og Heilbrigðiseftirlit Austurlands um fyrirkomulag framkvæmda, með hliðsjón af reglugerð 724/2008 um hávaða.
Vísað til kynningar hjá heimastjórn Borgarfjarðar.

Samþykkt samhljóða.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 72. fundur - 07.09.2026

Fyrir liggja upplýsingar um tilraunaboranir HEF veitna á Borgarfirði, en verkefnið hefur fengið styrk úr Orkusjóði. Stefnt er að því að bora 4-5 borholur í dreifbýli og eina við Sparkhöllina. Verkið kallar ekki á gerð borplana eða vegslóða.

Á fundi sínum 31. ágúst síðastliðinn tók umhverfis- og framkvæmdaráð til afgreiðslu mál HEF veitna um fyrirhugaðar tilraunaboranir á Borgarfirði og gerði ekki athugasemd við áætlanirnar en vísaði erindinu til kynningar hjá heimastjórn.
Heimastjórn fagnar fyrirhuguðum tilraunaborunum á Borgarfirði. Hún telur gæfulegt að boranir innan þéttbýlisins fari fram um helgi til að lágmarka hávaðamegnun og áhrif á skólastarf og starfsemi í kring um borsvæðið. Þá er mikilvægt að frágangur verði til fyrirmyndar.
Lagt fram til kynningar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?