Fara í efni

Starfshópur um málefni Ríkarðssafns

Málsnúmer 202608117

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 198. fundur - 01.09.2026

Fyrir liggja drög að erindisbréfi starfshóps um Ríkarðssafn sem deildarstjóra menningarmála var falið að útbúa á fundi byggðaráðs 28. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf starfshóps um málefni Ríkarðssafns og felur sveitarstjóra að kalla eftir tilnefningum í starfshópinn í samræmi við erindisbréfið. Þá vísar byggðaráð málinu einnig til umfjöllunar hjá heimastjórn á Djúpavogi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Heimastjórn Djúpavogs - 73. fundur - 03.09.2026

Fyrir liggur erindisbréf starfshóps um Ríkarðssafn sem byggðaráð Múlaþings samþykkti á fundi ráðsins 1. september 2026. Byggðaráð vísar málinu til umfjöllunar hjá heimastjórn á Djúpavogi sem skal skipa einn fulltrúa í starfshópinn samkvæmt erindisbréfinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn tilnefnir Írisi Birgisdóttir sem fulltrúa heimastjórnar í nýjan starfshóp um Ríkarðssafn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Byggðaráð Múlaþings - 201. fundur - 06.10.2026

Fyrir liggja tilnefningar í starfshóp um málefni Ríkarðssafns.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tilnefningar í starfshóp um málefni Ríkarðssafns.

Starfshópinn skipa því eftirfarandi:
Íris Birgisdóttir, tilnefnd af heimastjórn Djúpavogs.
Ríkarður Ríkarðsson, tilnefndur af fjölskyldu Ríkarðs Jónssonar.
Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir, sérfræðingur.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?