Málsnúmer 202209244Vakta málsnúmer
Framkvæmdir Markarlandi:
Búið er að leggja rafmagn í Markarlandi. Vel gengur að skipta út ljósastaurum. Fyrirhuguð malbikun er í lok september. Stefnt er á að steypa gangstéttir í framhaldi af malbikun í haust ef veður leyfir. Næst er unnið að greftri og lögnum meðfram Víkurlandi í átt að Mörk. Þegar því lýkur er verkefninu lokið að mestu leyti. Eftir það tekur við malbikun og frágangur.
Markarland 10:
Brák íbúðafélag og Múlaþing hafa verið í samvinnu varðandi uppbyggingu á húsnæði til útleigu. Nú eru íbúðirnar fimm tilbúnar og hafa þrjár þeirra verið afhentar nýjum íbúum.
Stofnanir sveitarfélagsins
Djúpavogshöfn
Óðinn Sævar Gunnlaugsson hefur hafið störf sem hafnarvörður Djúpavogshafnar og mun taka alfarið við af Stefáni Guðmundssyni við starfslok hans í október næstkomandi. Á höfninni gengur allt sinn vanagang og áætlaðir einhverjir línubátar í haust.
Af því fjörtíu og eina skemmtiferðaskipi sem áætlað var á Djúpavog í sumar hafa þrjátíu og þrjú þeirra heimsótt staðinn. Eitt skip er á áætlun 20. september næstkomandi og verður síðasta skemmtiferðaskipakoma sumarsins árið 2026. Sex skip komu ekki vegna veðurs. Því má áætla að, hingað til, hafi 26.926 farþegar heimsótt Djúpavog með skemmtiferðaskipum ásamt 13.494 sem tilheyra áhöfn.
Þjónustumiðstöð Djúpavogi
Allt gengur sinn vanagang, viðhaldi á húsum sveitarfélagsins sinnt og umhirða opinna svæða. Opnunartími söfnunarstöðvarinnar á Háaurum er sá sami og hefur verið; þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 13:30 til 16:30 og laugardaga frá klukkan 11:00 til 13:00.
Tryggvabúð
Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir hefur hafið störf með eldri borgurum á Djúpavogi. Hún tekur við 60% starfi þar og verður á móti því í 40% starfi í Geysi á mannauðs- og þjónustusviði. Nú er vetrarstarf hafið í Tryggvabúð. Sambærileg dagskrá og verið hefur; sundleikfimi verður á mánudögum og pokavarp á fimmtudögum, hvoru tveggja klukkan 10:30 og gönguferð á miðvikudögum klukkan 10:00. Því til viðbótar verður stólaleikfimi í Tryggvabúð 2x í viku; á mánudögum og fimmtudögum klukkan 13:00. Vöfflukaffið á sínum stað á miðvikudögum klukkan 15:00.
Geysir
Opnunartími skrifstofunnar hefur verið aðlagaður að því þegar þjónustufulltrúi er við störf í Geysi og er nú alla jafna þriðjudaga og föstudaga frá 8:30 til 12:00 en utan þess tíma er íbúum bent á að starfsfólk Geysis er aðgengilegt í gegnum þjónustuver Múlaþings alla virka daga frá 8:30 til 15:30 í síma 4 700 700 eða með tölvupósti á mulathing@mulathing.is. Einnig má ávallt koma gögnum í póstkassann á bakhlið Geysis.
Íþróttamiðstöð Djúpavogs
17. ágúst hófst vetraropnun aftur. Opið er virka daga kl. 7 til 20:15 og laugardaga kl. 11 til 15. Helst í fréttum er að saunuklefinn er á leiðinni til landsins og stefnt er á að ljúka uppsetningu hans sem fyrst eftir að hann kemur á Djúpavog.
Loftræstikerfið fyrir sundlaugina bilaði í lok ágúst. Búið er að panta nýtt og verður sett upp eins fljótt og auðið er. Gestir eru beðnir að sýna þessu þolinmæði á meðan á því stendur.
Leikskólinn Bjarkatún
Framkvæmdir við leikskólann halda áfram og starfsemin aðlöguð að því. Skólastjóri og sérkennslustjóri eru því skrifstofulausar á meðan á framkvæmdum stendur og eftirvænting eftir nýrri viðbyggingu mikil. Leikskólinn er fullmannaður fyrir utan eina stöðu sem auglýst er eftir um þessar mundir. Bjarkatún er nú á öðru ári innleiðingar á stefnunni ,,heillaspor" og er ennþá eini leikskólinn í Múlaþingi á þeirri vegferð. Heillaspor rýmar vel við hugmyndafræð Cittaslow sem skólinn þekkir mæta vel.
Djúpavogsskóli
Skólahald grunnskólans hófst með skólasetningu 25. ágúst. Boðið verður upp á fjarkennslu í tónlistarskólanum og unnið um þessar mundir að skipulagi á stundatöflum og húsnæði eftir góða skráningu í tónlist. Djúpavogsskóli er á leið í verkefni með Hafrannsóknarstofnun þar sem nemendur taka fjöru í fóstur. Skólinn fæst við eflingu í teymiskennslu ásamt breyttum áherslum í námsmati eins og aðrir skólar á landinu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu