Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

198. fundur 01. september 2026 kl. 08:30 - 11:58 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Guðlaugur Sæbjörnsson starfsmaður
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings og vísar henni til samþykktar hjá sveitarstjórn.

Byggðaráð brýnir fyrir sviðsstjórum og forstöðumönnum stofnana að sýna aðhald við gerð fjárhagsáætlunarinnar í ljósi óvissu í efnahagsmálum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

3.Samkomusalur í Valaskjálf

Málsnúmer 202607130Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað sveitarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu um sviðsmyndir varðandi framtíð samkomusalarins í Valaskjálf sem er í eigu 701 Hotels ehf. Málið var tekið fyrir á fundi byggðaráðs 11. ágúst 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mæta Jóhann Pétur Reyndal og Gísli Steinar Gíslason, eigendur 701 Hotels ehf.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Jóhanni Pétri og Gísla Steinari fyrir komuna á fundinn.

Sveitarstjóra er falið að boða til íbúafundar um framtíð samkomusalarins í Valaskjálf þar sem sviðsmyndir verða kynntar og íbúum gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Byggðaráð vísar málinu einnig til umfjöllunar í heimastjórn Fljótsdalshéraðs.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Yfirlýsing frá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs um menningarhúsnæði á Egilsstöðum

Málsnúmer 202608155Vakta málsnúmer

Fyrir liggur yfirlýsing frá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs, sem móttekin var 25. ágúst 2026, þar sem Múlaþing er hvatt til þess að tryggja aðstöðu fyrir alþýðulist í sveitarfélaginu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Leikfélagi Fljótsdalshéraðs fyrir erindið. Sveitarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Samráðsgátt. Grænbók, stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga

Málsnúmer 202607037Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að svörum sveitarfélagsins til innviðaráðuneytisins vegna grænbókar þar sem unnið er að endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi drög að svörum sveitarfélagsins til innviðaráðuneytisins vegna grænbókar og vísar þeim til staðfestingar hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Starfshópur um málefni Ríkarðssafns

Málsnúmer 202608117Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að erindisbréfi starfshóps um Ríkarðssafn sem deildarstjóra menningarmála var falið að útbúa á fundi byggðaráðs 28. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf starfshóps um málefni Ríkarðssafns og felur sveitarstjóra að kalla eftir tilnefningum í starfshópinn í samræmi við erindisbréfið. Þá vísar byggðaráð málinu einnig til umfjöllunar hjá heimastjórn á Djúpavogi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202608172Vakta málsnúmer

Fyrir liggur boð á landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga sem haldinn verður 17. september 2026 á Akureyri.
Lagt fram til kynningar.

8.Niðurgreiðsluhlutfall raforku í íbúðarhúsnæði í Múlaþingi

Málsnúmer 202604006Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá verkefnastjóra Eyglóar-verkefnisins hjá Austurbrú, þar sem farið er yfir niðurgreiðsluhlutfall raforku fyrir íbúðarhúsnæði í Múlaþingi. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til þess hvort að ástæða þyki til átaks eða aðgerða er varða niðurgreiðslur hjá íbúum í sveitarfélaginu Múlaþingi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að koma af stað átaki í upplýsingagjöf á vefsíðu og miðlum Múlaþings um möguleg tækifæri íbúa á niðurgreiðslu á raforku.

Byggðaráð vísar erindinu einnig til heimastjórna sveitarfélagsins með hvatningu um að það verði tekið fyrir á íbúafundum þar sem vakin verði athygli íbúa á þessum möguleika.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

9.Afmælishaustþing Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 2026

Málsnúmer 202608165Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar dagskrá haustþings Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem haldið verður í Egilsbúð í Neskaupstað 17. til 18. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:58.

Getum við bætt efni þessarar síðu?