Fara í efni

Samstarf og regluleg viðvera Bergsins á Austurlandi

Málsnúmer 202608136

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 168. fundur - 21.09.2026

Fyrir liggur erindi frá ráðgjafa- og stuðningssetrinu Berginu headspace, dagsett 24. ágúst 2026, þar sem kannaður er áhugi Múlaþings á samstarfi við setrið. Markmið samstarfsins er að efla aðgengi ungmenna í sveitarfélaginu og Austurlandi öllu að gjaldfrjálsri ráðgjöf og stuðningi sem stuðlar að bættri líðan og aukinni virkni.
Fjölskylduráð leggur áherslu á mikilvægi þess að efla aðgengi ungmenna að ráðgjöf og stuðningi. Sviðsstjóra velferðar er falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Fjölskylduráð Múlaþings - 174. fundur - 16.11.2026

Á fundi fjölskylduráðs þann 21. september 2026 var tekið fyrir erindi frá Berginu headspace um samstarf og reglulega viðveru á Austurlandi. Samþykkt var að vinna málið áfram með það að markmiði að efla aðgengi ungmenna að gjaldfrjálsri ráðgjöf og stuðningi.
Fjölskylduráð vísar erindinu til ungmennaráðs Múlaþings til umsagnar og óskar eftir sjónarmiðum ráðsins varðandi mögulegt samstarf við Bergið headspace og reglulega viðveru þess á Austurlandi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?