Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

168. fundur 21. september 2026 kl. 09:00 - 12:05 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Guðgeir Einarsson aðalmaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir aðalmaður
  • Urður Arna Ómarsdóttir varamaður
  • Berglind Sveinsdóttir varamaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson varafulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Marta Wium Hermannsdóttir leikskólafulltrúi
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði
Áheyrnarfulltrúar leikskóla Hugrún Malmquist Jónsdóttir og Rósa Dóra Sigurðardóttir sátu liði 1 - 2. Hugrún Malmquist Jónsdóttir sat einnig lið 3.

1.Mannauðsmál í leikskólum 2026-2027

Málsnúmer 202608071Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til samþykktar tillögur um tímabundnar breytingar á daggæsluframlagi Múlaþings.
Í upphafi máls vakti Guðgeir Einarsson (GE) athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir málsliðnum og gerði grein fyrir því. Formaður (JB) opnaði mælendaskrá og bar upp tillögu til afgreiðslu og var vanhæfi GE samþykkt samhljóða. Einnig vakti Guðný Lára Guðrúnardóttir (GLG) athygli á vanhæfi sínu sem var samþykkt samhljóða. Véku GE og GLG af fundi við umræðu og afgreiðslu máls.

Fjölskylduráð lýsir yfir áhyggjum af þeirri erfiðu stöðu sem uppi er í leikskólanum Tjarnarskógi vegna manneklu. Staðan hefur veruleg áhrif á þær fjölskyldur sem bíða eftir að börn þeirra geti hafið leikskóladvöl og hefur jafnframt áhrif á atvinnulíf í sveitarfélaginu.

Fjölskylduráð hefur fjallað um eftirfarandi ráðstafanir sem lagðar eru til vegna stöðunnar:

Daggæsluframlag verði tímabundið hækkað úr 52.153 kr. í 104.500 kr. á mánuði frá 1. ágúst 2026. Hækkunin taki til allra foreldra sem uppfylla skilyrði reglna Múlaþings um daggæsluframlag, óháð því hvort barni hafi þegar verið úthlutað leikskólaplássi og gildi á meðan skilyrði fyrir greiðslu daggæsluframlags eru uppfyllt, þó ekki lengur en til 31. desember 2026. Veitt verði tímabundin undanþága frá reglum Múlaþings um daggæsluframlag þannig að foreldrar sem uppfylla skilyrði reglnanna geti sótt um daggæsluframlag afturvirkt frá 1. ágúst 2026.

Ráðið felur starfsmanni að hefja vinnu við heildarendurskoðun á daggæsluframlagi Múlaþings og vinna jafnframt drög að skýrum ferlum um upplýsingagjöf til foreldra tilvonandi leikskólabarna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Erindi til fjölskylduráðs frá rekstrarstjórn HSA

Málsnúmer 202609148Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá rekstrarstjórn Heilbrigðisstofnunar Austurlands á Egilsstöðum, dagsett 17. september 2026, þar sem óskað er eftir að fjölskylduráð Múlaþings taki til skoðunar hvort veita megi tímabundinn forgang að leikskólavist fyrir börn heilbrigðisstarfsfólks vegna manneklu í heilbrigðisþjónustu.
Starfsmanni er falið að setja sig í samband við rekstrarstjórn HSA í samræmi við umræður á fundinum. Málið er áfram til vinnslu.

3.Kynning á starfsemi fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202606038Vakta málsnúmer

Leikskólafulltrúi skóla- og frístundaþjónustu kynnti verkefnið Heillaspor en Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stendur að þróun og innleiðingu Heillaspora hér á landi. Heillaspor er heildræn nálgun til að styðja við farsæla þátttöku barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi.
Fjölskylduráð þakkar leikskólafulltrúa fyrir kynninguna.

4.Samstarf og regluleg viðvera Bergsins á Austurlandi

Málsnúmer 202608136Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá ráðgjafa- og stuðningssetrinu Berginu headspace, dagsett 24. ágúst 2026, þar sem kannaður er áhugi Múlaþings á samstarfi við setrið. Markmið samstarfsins er að efla aðgengi ungmenna í sveitarfélaginu og Austurlandi öllu að gjaldfrjálsri ráðgjöf og stuðningi sem stuðlar að bættri líðan og aukinni virkni.
Fjölskylduráð leggur áherslu á mikilvægi þess að efla aðgengi ungmenna að ráðgjöf og stuðningi. Sviðsstjóra velferðar er falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

5.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra velferðar.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:05.

Getum við bætt efni þessarar síðu?