Fara í efni

Öldungaráð Múlaþings

10. fundur 08. maí 2025 kl. 10:00 - 11:00 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Baldur Pálsson
  • Þorvaldur P. Hjarðar
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir
  • Gyða Vigfúsdóttir
  • Jóhann Pétur Hansson
  • Soffía Sigríður Jónasdóttir
Starfsmenn
  • Anna Alexandersdóttir félagsmálastjóri
  • Aðalheiður Árnadóttir deildastjóri í félagslegri ráðgjöf
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Aðalheiður Árnadóttir Deildarstjóri í félagslegri ráðgjöf

1.Beiðni um styrk fyrir námskeið fyrir eldri borgara í tækjasal

Málsnúmer 202501150Vakta málsnúmer

Gyða Vigfúsdóttir, formaður öldungaráðs, fer yfir hvernig hefur gengið með námskeiðið í tækjasal fyrir eldri borgara.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Öldungaráð beinir því til fjölskylduráðs að haldið verði áfram með svipað fyrirkomulag fyrir styrktaræfingar eldri borgara í haust. Jafnframt verði gerð heildaráætlun á hreyfiúrræðum fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu og að gert verði ráð fyrir því í fjárhagsáætlunum Múlaþings.
Samþykkt samhljóða.

2.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Til umsagnar er vinnslutillaga aðalskipulags Múlaþings 2025-2045.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Öldungaráð lýsir ánægju sinni með þá góðu og miklu vinnu sem liggur að baki vinnslutillögu aðalskipulags Múlaþings. Ráðið bendir jafnframt á að fullt tilefni sé til þess að huga að húsnæðisþörfum eldri borgara í aðalskipulagi til að mynda með því að setja þá stefnu að metið sé við skipulagningu íbúðahverfa hvort þörf sé fyrir að eyrnmamerkja lóðir eða svæði fyrir eldri borgara. Öldungaráð leggur áherslu á að horft sé til þess að húsnæði fyrir eldri borgara séu staðsett þannig að stutt sé í flesta þjónustu og afþreyingu þannig að eldri borgarar geti verið sjálfbjarga og sem lengst heima.
Samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?