Fara í efni

Öldungaráð Múlaþings

12. fundur 15. janúar 2026 kl. 10:00 - 11:15 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Baldur Pálsson
  • Þorvaldur P. Hjarðar
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir
  • Gyða Vigfúsdóttir
  • Jóhann Pétur Hansson
  • Sigurveig Gísladóttir
Starfsmenn
  • Helga Þórarinsdóttir deildastjóri í félagslegri ráðgjöf
  • Þórey Hákonardóttir starfsmaður fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Helga Þórarinsdóttir deildarstjóri í félagslegri ráðgjöf

1.Ábendingar frá stjórn félags eldri borgara á Fljótsdalshéraði til Öldungaráðs

Málsnúmer 202601058Vakta málsnúmer

Bréf til formanns Öldungaráðs frá Félagi eldri borgara á Fljótsdalshéraði
Öldungaráð þakkar bréf sent 30.10. 2025 frá formanni Félags eldri borgara Fljótsdalshéraði varðandi skyldur öldungaráðs. Öldungaráð er fjölskylduráði og bæjarstjórn Múlaþings til ráðgjafar um málefni og hagsmuni þeirra íbúa sem eru 67 ára og eldri. Ráðið hefur ekki stöðu fastanefndar sveitarfélagins og er launalaust. Farið var yfir bréfið og fjölskyldustefnu Múlaþings sem gildir til 2035 og bárum saman þá þætti sem snúa að umræddum hópi. Teljum að þar sé tekið á flestum þáttum sem eru á vegum sveitarfélagsins samkvæmt lögum.
Samþykkt með fimm atkvæðum, einn situr hjá (ÁHB)

2.Gott að eldast, förum alla leið, samþætt þjónusta í heimahúsum

Málsnúmer 202308168Vakta málsnúmer

Kynning á verkefninu Gott að eldast
lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?