Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

179. fundur 13. apríl 2026 kl. 08:30 - 11:03 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Þórhallur Borgarson varaformaður
  • Björgvin Stefán Pétursson aðalmaður
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir aðalmaður
  • Eiður Gísli Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Pétur Heimisson aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Slökkvistjóri Múlaþings, Haraldur Geir Eðvaldsson, sat fundinn undir lið nr 1.

Staðgengill hafnastjóra, Eiður Ragnarsson, sat fundinn undir liðum 2.-5.

Verkefnastjóri skipulagsmála, Sóley Valdimarsdóttir, sat fundinn undir liðum 6.-10.

1.Skýrsla slökkviliðsstjóra, 2026

Málsnúmer 202601061Vakta málsnúmer

Slökkvistjóri Múlaþings, Haraldur Geir Eðvaldsson, fer yfir málefni slökkviliðsins.
Lagt fram til kynningar.

2.Þjónustumiðstöð, Djúpavogi

Málsnúmer 202504136Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi frá Hafnarsjóði Múlaþings, er varðar ósk hafnanna um samþykki á kaupum á Sambúð á Djúpavogi, þ.e. Mörk 12 og 14.

Byggðarráð fól sveitastjóra á 179. fundi sínum þann 17. febrúar 2026 að ganga frá kaupum á húsinu. Samkomulag hefur náðst um kaupin, og á húsnæðið að þjónusta m.a. þjónustumiðstöð Djúpavogs, aðstöðu fyrir HEF Veitur og eins starfsemi hafnarinnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð sem fer með verkefni hafnastjórnar, samþykkir fyrir sitt leyti kaup hafnarsjóðs á húsnæðinu Mörk 12 og Mörk 14, Sambúð, á Djúpavogi. Ráðið felur hafnastjóra að ganga frá kaupum á Sambúð, endurskoða fjárfestingaráætlun hafna og leggja fyrir ráðið.
Ráðið felur sviðsstjóra framkvæmda að setja af stað þarfagreiningu ásamt forgangsröðun vegna endurbóta á húsnæðinu í samráði við heimastjórn Djúpavogs.

Samþykkt samhljóða.

3.Skýrsla hafnastjóra, 2026

Málsnúmer 202601063Vakta málsnúmer

Staðgengill hafnastjóra, Eiður Ragnarsson, fer yfir stöðu verkefna hjá höfnum Múlaþings.

Lagt er fram til kynningar minnisblað frá AECO er varðar skemmtiferðaskip og virðisaukaskatt.
Lagt fram til kynningar.

4.Fundargerðir stjórnar Hafnasamband Íslands 2026

Málsnúmer 202601221Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram til kynningar fundargerðir Cruise Iceland, þ.e. endurskoðaðar samþykktir 2025, Ársreikningur 2025, Aðalfundur 2026 ásamt glærum af sama fundi og fundargerð Stjórnar Cruise Iceland dagsettri 12.02.2026.
Einnig er lögð fram til kynningar 480. fundargerð Stjórnar Hafnarsambands Íslands, dagsettri 16. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

5.Áskorun frá Siglingasambandi Íslands

Málsnúmer 202603031Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar áskorun frá Siglingasambandi Íslands. Á 53. Siglingaþingi SÍL, dagsett 21. febrúar 2026, skoraði sambandið á sveitarfélög landsins að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgeni almennings að sjónum til útivistar og janframt að huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar.
Lagt fram til kynningar.

6.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að nýju Aðalskipulagi Múlaþings 2025-2045. Tillagan hefur verið uppfærð í samræmi við afgreiðslu umhverfis- og framkvæmdaráðs á þeim umsögnum sem bárust við fyrri auglýsingu skipulagstillögunnar.
Eftirfarandi tillaga var lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að tillögu að Aðalskipulagi Múlaþings 2025-2045 verði vísað í auglýsingu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga, að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

Samþykkt samhljóða.

Fulltrúar V-lista (PH og ÁMS) og L-lista (ÁHB) lögðu fram eftirfarandi bókun:
Við gerum ekki ágreining um að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja að tillögu að Aðalskipulagi Múlaþings 2025-2045 verði vísað í auglýsingu. Við áréttum þó andstöðu okkar við þá ákvörðun meirihluta umhverfis- og framkvæmdráðs á 177. fundi ráðsins að fella niður hverfisvernd á Hofsdal, Tungu, Hofsá, Geithellnadal og Þrándarjökli frá árinu 2006. Fyrir þeirri ákvörðun liggja engin málefnaleg rök og engin greining hefur farið fram á hvað í breytingunni felst. Sjá nánar ýtarlegri bókun okkar á 177. fundi Umhverfis- og framkvæmdaráðs 16.03. 2026

7.Deiliskipulag, Gilsárvirkjun

Málsnúmer 202401135Vakta málsnúmer

Í upphafi máls vöktu Ásdís Hafrún Benediktsdóttir (ÁHB) og Þórhallur Borgarson (ÞB) máls á vanhæfi sínu undir málslið 7. ÁHB og ÞB gerðu grein fyrir vanhæfi sínu og bar JB upp tillögu til atkvæðagreiðslu. Vanhæfið var samþykkt samhljóða og véku ÁHB og ÞB af fundi við umræðu og afgreiðslu málanna.

Nýtt deiliskipulag Gilsárvirkjunar í Eiðaþingá var auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga 123/2010 með athugasemdafresti frá 12. febrúar til 30. mars 2026. Athugasemdir bárust frá 7 aðilum og liggur fyrir samantekt á þeim ásamt tillögu að svörum.
Lagður er fram uppdráttur og greinargerð, dags. 8. apríl 2026, þar sem brugðist hefur verið við þeim umsögnum og athugasemdum sem bárust.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til við heimastjórn Fljótsdalshéraðs að samþykkja framlagt deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma, en breyta ekki auglýstri tillögu í grundvallaratriðum.

Samþykkt með 3 atkvæðum, 2 á móti (ÁMS) og (PH).

Fulltrúar V-lista (PH og ÁMS) lögðu fram eftirfarandi bókun:
Við fulltrúar VG leggjumst gegn því að deiliskipulag þetta sé samþykkt. Það gerum við vegna óásættanlegrar hættu samfara fyrirhugaðri virkjun fyrir náttúru og lífríki.
Auk þess beinum því til heimastjórnar Fljótsdalshéraðs að samþykkja ekki framlagt deiliskipulag. Það gerum við með vísan í að heimastjórnin fer með hlutverk náttúruverndarnefndar og ber því öðrum fremur stjórnsýslulega ábyrgð á því í sveitarfélaginu, að náttúruverndarlög séu virt við alla skipulagsgerð. Við teljum fyrirliggjandi gögn sýna að núverandi útfærslu á fyrirhugaðri Gilsárvirkjun fylgi óásættanlega mikil hætta fyrir náttúru og sérlega vatnalífríki. Við höfum bent á þann möguleika að beina því til Orkusölunnar ehf að leggja annað tveggja fram verndaráætlun vegna staðbundins laxastofns eða hreinlega aðra útfærslu á virkjun árinnar. Því treystum við á að heimastjórnin, þ.e. náttúruverndarnefndin, taki fullt tillit til þessa álits minnihlutans sem telur 2/5 atkvæðisbærra fulltrúa við afgreiðslu málsins frá Umhverfis- og framkvæmdaráði. Að lokum vísum við til ítarlegri bókunar varðandi þetta mál á 173. fundi Umhverfis- og framkvæmdaráðs 02.02.2026.

8.Deiliskipulagsbreyting, Grund við Stuðlagil, breytt lóðamörk

Málsnúmer 202503209Vakta málsnúmer

Breyting á deiliskipulagi Grundar við Stuðlagil var auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga 123/2010 með athugasemdafresti frá 12. febrúar til 30. mars 2026, athugasemdir bárust frá 3 aðilum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur starfsmanni að láta uppfæra skipulagsgögn í samræmi við ábendingar frá HAUST um vatnsverndarsvæði og fráveitu. Ráðið leggur til við heimastjórn Fljótsdalshéraðs að uppfært skipulag verði samþykkt skv. 42. gr. skipulagslaga.

Samþykkt samhljóða.

9.Umsókn um byggingarheimild, Tjarnarbraut 7, 700

Málsnúmer 202601028Vakta málsnúmer

Grenndarkynningu byggingaráforma við Tjarnarbraut 7 á Egilsstöðum lauk þann 25. mars 2026 án athugasemda.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð staðfestir að framkvæmd grenndarkynningar skv. 44. gr. skipulagslaga sé lokið án athugasemda.

Samþykkt samhljóða.

10.Umsókn um byggingaráform, Austurvegur 32

Málsnúmer 202604019Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um byggingaráform við Austurveg 32 (L154901) á Seyðisfirði sem fela í sér viðbyggingu fyrir 2 íbúðir til útleigu. Áformin eru í samræmi við aðalskipulag en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með fyrivara um jákvæða umsögn Minjastofnunar Íslands samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að áformin verði grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning nái til fasteignaeigenda Austurvegar 34 (L154902) og Brekkuvegar 3 (L154975).

Samþykkt samhljóða.

11.Umsóknir í Fiskeldissjóð 2026

Málsnúmer 202602038Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað verkefnastjóra atvinnumála ásamt svarbréfum vegna úthlutunar úr Fiskeldissjóði 2026.
Múlaþing sendi inn fimm umsóknir að þessu sinni og fékk úthlutað samtals 106.812.339 kr. til þriggja verkefna; gatnagerð í Víkurlandi á Djúpavogi, byggingu Grunnskóla á Seyðisfirði og fráveitu í Markarlandi á Djúpavogi. Umsóknum vegna Safnahússins á Egilsstöðum og Samvinnuhúss í Sambúð á Djúpavogi var hafnað.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar því til sviðsstjóra framkvæmda að endurskoða fjárfestingaráætlun ársins í ljósi niðurstöðu úthlutunar sjóðsins.

Samþykkt samhljóða.

12.Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings - 13

Málsnúmer 2604002FVakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð frá 13. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:03.

Getum við bætt efni þessarar síðu?