Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

198. fundur 02. nóvember 2026 kl. 13:00 - 16:58 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Þórhallur Borgarsson aðalmaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson varamaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Slökkvistjóri Múlaþings, Haraldur Geir Eðvaldsson, sat fundinn undir lið 1.

Hafnastjóri Múlaþings, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sat fundinn undir liðum 2.-7.

Yfirhafnarvörður, Rúnar Gunnarsson, sat fundinn undir liðum 2.-7.

Verkefnastjóri umhverfismála, Stefán Aspar Stefánsson, sat fundinn undir lið 9.

Byggingafulltrúi Múlaþings, Jörgen Sveinn Þorvarðarson, sat fundinn undir lið 10.

1.Skýrsla slökkvistjóra

Málsnúmer 202601061Vakta málsnúmer

Slökkvistjóri Múlaþings, Haraldur Geir Eðvaldsson, fer yfir málefni slökkviliðsins.
Lagt fram til kynningar.

2.Skýrsla hafnastjóra

Málsnúmer 202601063Vakta málsnúmer

Hafnastjóri og yfirhafnavörður, fara yfir stöðu verkefna hjá höfnum Múlaþings.
Lagt fram til kynningar.

3.Stækkun Djúpavogshafnar

Málsnúmer 202610235Vakta málsnúmer

Yfirhafnavörður situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur hugmynd að stækkun Djúpavogshafnar sem unnin var í byrjun árs 2024 samhliða gerð deiliskipulags athafna- og hafnarsvæðis við Innri Gleðivík.

Hafnastjóri fer yfir stöðu málsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur hafnastjóra og formanni ráðsins að bóka fund með Vegagerðinni.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 202610227Vakta málsnúmer

Hafnastjóri og yfirhafnavörður sitja fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggja drög að uppfærðri gjaldskrá fyrir hafnir Múlaþings 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir gjaldskránna og vísar henni til byggðaráðs.

Samþykkt með 5 atkvæðum, 2 á móti (ÁMS og GB, V-lista).

Fulltrúar V-lista (ÁMS OG GB) leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar V-lista sjá sér ekki fært að samþykkja breytingar á gjaldskrá hafnanna á meðan eldisgjald er ekki innheimt í samræmi við gildandi gjaldskrá, líkt og verið hefur undanfarin tæp tvö ár. Fulltrúar V-lista telja óeðlilegt að samþykkja breytingar á gjaldskrá sem sveitarfélagið sjálft hefur ekki farið eftir um svo langt skeið.

5.Fundargerðir stjórnar Hafnasamband Íslands

Málsnúmer 202601221Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð 486. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands, dagsett 2. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Umhverfishönnun, Seyðisfjörður, umhverfis Lónið

Málsnúmer 202502044Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda fer yfir fyrstu hugmyndir að umhverfishönnun umhverfis Lónið og kynnir fyrir ráðinu.
Lagt fram til kynningar.

7.Ályktun stjórnarfundar NAUST vegna sjókvíeldi í Seyðisfirði

Málsnúmer 202609233Vakta málsnúmer

Glúmur Björnsson, vakti athygli á mögulegu vanhæfi sínu í upphafi máls. Formaður bar vanhæfið upp til atkvæðagreiðslu.
Tillaga um vanhæfni GB var felld með 4 atkvæðum (ÞB, ÞKS, ÁMS og GB). Þrír sátu hjá (ÞBJ, ÓAH og GBH).
Ráðið taldi Glúm Björnsson ekki vanhæfan til meðferðar málsins og tók hann því áfram þátt í umræðu og afgreiðslu þess.

Hafnastjóri og yfirhafnavörður, sátu fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur ályktun vegna sjókvíaeldis sem samþykkt var á sjórnarfundi NAUST - Náttúruverndarsamtaka Austurlands, þann 20. september 2026.

NAUST óskar þar eftir því að umhverfis- og framkvæmdaráð taki ályktunina til umfjöllunar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings þakkar NAUST fyrir erindið og þann áhuga sem samtökin sýna náttúruvernd.

Ráðið leggur áherslu á að ákvarðanir í umhverfismálum byggist á faglegum og málefnalegum forsendum og ber traust til þess að þar til bær stjórnvöld og eftirlitsaðilar sinni lögbundnum hlutverkum sínum.

Jafnframt leggur ráðið áherslu á að gæta heildarhagsmuna sveitarfélagsins, þar sem náttúruvernd, atvinnustarfsemi og samfélagsleg uppbygging fari saman, með jafnræði og meðalhóf að leiðarljósi.

Samþykkt með 5 atkvæðum, 2 á móti (GB og ÁMS).

Fulltrúar V-lista (GB og ÁMS) leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar V-lista þakka NAUST fyrir erindið og taka heilshugar undir ályktun samtakanna.

Fulltrúar V-lista geta hins vegar ekki tekið undir bókun meirihlutans, þar sem lýst er yfir trausti á að viðkomandi stjórnvöld og eftirlitsaðilar sinni lögbundnum hlutverkum sínum. Slík traustsyfirlýsing vekur furðu í ljósi þeirra samskipta sem starfsmenn Múlaþings hafa átt við stofnanir ríkisins vegna þessa máls, sem og þeirra alvarlegu athugasemda sem fram hafa komið um stjórnsýslu og eftirlit með sjókvíaeldi á Íslandi.
Í því samhengi nægir að benda á niðurstöður Ríkisendurskoðunar í skýrslunni Sjókvíaeldi ? lagaframkvæmd, stjórnsýsla og eftirlit frá árinu 2023, auk þeirra álitaefna um stjórnsýslu og leyfisveitingar sem komið hafa til kasta umboðsmanns Alþingis og úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Fulltrúar V-lista telja að hlutverk sveitarfélagsins sé ekki að lýsa yfir skilyrðislausu trausti á stjórnsýslu ríkisins, heldur að gæta með virkum hætti hagsmuna íbúa, náttúru og lífríkis Seyðisfjarðar. Það felur meðal annars í sér að nýta þau stjórnsýslulegu og lagalegu úrræði sem sveitarfélaginu standa til boða til að koma í veg fyrir fyrirhugað sjókvíaeldi í firðinum.

8.Endurbygging löndunarbryggju í Borgarfjarðarhöfn

Málsnúmer 202511109Vakta málsnúmer

Hafnastjóri og yfirhafnavörður, sátu fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggja til kynningar fundargerðir, dagsettar 22. september og 6. október 2026, frá verkstöðufundum fulltrúa Vegagerðarinnar, Hafna Múlaþings og Úlfsstaða ehf. vegna endurbyggingar gömlu löndunarbryggjunnar í Borgarfjarðarhöfn.
Lagt fram til kynningar.

9.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 202610227Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggja drög að uppfærðum gjaldskrám fyrir meðhöndlun úrgangs, fyrir hunda- og kattahald og fyrir þjónustumiðstöðvar í Múlaþingi fyrir árið 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagðar gjaldskrár, í samræmi við breytingar sem gerðar voru á fundinum og vísar þeim til byggðaráðs.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

10.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 202610227Vakta málsnúmer

Byggingafulltrúi situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggja drög að uppfærðri gjaldskrá skipulags- og byggingarmála í Múlaþingi fyrir árið 2027. Gjöld í gjaldskrá munu hækka um 2,5%, samkvæmt bókun byggðarráðs á 201. fundi 6. október síðastliðinn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir gjaldskránna og vísar henni til byggðaráðs.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 16:58.

Getum við bætt efni þessarar síðu?