Fara í efni

Ungmennaráð Múlaþings

45. fundur 29. janúar 2026 kl. 16:15 - 18:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Rakel Wium Ágústsdóttir varamaður
  • Jóhann Smári Kjartansson aðalmaður
  • Aron Bergur Hjaltason aðalmaður
  • Bergþóra Thea Birgisdóttir aðalmaður
  • Ína Berglind Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Egill Freyr Ólafsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Þórunn Ólafsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Þórunn Ólafsdóttir Verkefnastjóri á fjölskyldusviði

1.Ungmennaþing Barnaheilla á Egilsstöðum

Málsnúmer 202601073Vakta málsnúmer

Framhald umræðu um ungmennaþing Barnaheilla sem haldið verður í Menntaskólanum á Egilsstöðum 24. mars nk.
Þingið og efni þess kynnt ungmennaráði. Barnaheill óska eftir sjálfboðaliðum til að aðstoða við að stýra umræðum.

2.Rannís umsóknir, frístundir og forvarnir

Málsnúmer 202410215Vakta málsnúmer

Framhald umræðu um fyrirhuguð Erasmus-ungmennaskipti.
Fulltrúi ungmennaráðs ásamt verkefnastjóra er á leið til Finnlands á undirbúningsfund vegna ungmennaskiptanna framundan.
Hópur ungmenna heimsækir ungmennaráð 13-19 apríl og svo stendur fulltrúum ungmennaráðs til boða að heimsækja sama hóp í Finnlandi í ágúst.
Hugmyndir að dagskrá ræddar, en hópurinn notar forritið Padlet í sameiginlegri hugmyndavinnu.

3.Ungmennaþing 2026

Málsnúmer 202601206Vakta málsnúmer

Umræður um ungmennaþing 2026. Þingið verður haldið 16. apríl og samtal um efnistök heldur áfram á næsta fundi ungmennaráðs.
Hugmynd um að bjóða upp á umræðuhópa tengda málefnum sveitarfélagsins.

4.Skýrsla verkefnastjóra ungmennaráðs

Málsnúmer 202601208Vakta málsnúmer

Starfið framundan og önnur mál.

1. Ungmennaráð og samfélagsmiðlar - verkefnastjóri vinnur að því að endurvekja instagram-reikning ráðsins.
2. Umræður um komandi sveitarstjórnarkosningar og hlutverk ungmennaráðs.
3. Umræður um fundartíma ráðsins, samþykkt að halda sama tíma og verið hefur, sem er síðasti fimmtudagur hvers mánaðar, kl 16.15.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?