Fara í efni

Ungmennaþing 2026

Málsnúmer 202601206

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð Múlaþings - 45. fundur - 29.01.2026

Umræður um ungmennaþing 2026. Þingið verður haldið 16. apríl og samtal um efnistök heldur áfram á næsta fundi ungmennaráðs.
Hugmynd um að bjóða upp á umræðuhópa tengda málefnum sveitarfélagsins.

Ungmennaráð Múlaþings - 46. fundur - 26.02.2026

Umræður um ungmennaþing 2026.
Vilji fyrir að fá fjölbreytt erindi og fræðslu, t.d. um símareglur, skjánotkun og samfélagsmiðla. Líttu upp-verkefnið nefnt í því samhengi.
Erindi frá lögreglunni um afleiðingar þess að brjóta lög, t.d. skemmdarverk og ofbeldi.
Umræður í anda Öruggara Austurland.
Fræðsla um fordóma og staðalmyndir.
Fræðsla um lýðræði og hlutverk sveitarfélaga. Kynna hlutverk ungmennaráðs.
Mögulega kynningu frá Rannís á Erasmus-tækifærum.

Ungmennaráð Múlaþings - 47. fundur - 30.03.2026

Framhald á skipulagningu ungmennaþings sem fer fram á Egilsstöðum 16. apríl 2026.
Ákveðið að vinna áfram með þemað ungt fólk og lýðræði. Þingið verður haldið í Valaskjálf og ungmennaráð felur verkefnastjóra að halda áfram með skipulagsvinnu.

Ungmennaráð Múlaþings - 48. fundur - 06.05.2026

Farið yfir framkvæmd ungmennaþings 2026 sem haldið var í Valaskjálf 16. apríl sl.
Ákveðið að fara yfir niðurstöður þingsins á næsta fundi ungmennaráðs og undirbúa kynningu fyrir sveitarstjórn. Auk þess mun ungmennaráð vinna að handbók um framkvæmd ungmennaþings sem gæti nýst nýju ungmennaráði við framkvæmd næsta þings.
Getum við bætt efni þessarar síðu?