Fara í efni

Ungmennaráð Múlaþings

47. fundur 30. mars 2026 kl. 13:00 - 15:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Bríet Eva Ágústsdóttir aðalmaður
  • Jóhann Smári Kjartansson aðalmaður
  • Aron Bergur Hjaltason aðalmaður
  • Birgir Steinn Halldórsson Warén aðalmaður
  • Bergþóra Thea Birgisdóttir aðalmaður
  • Ína Berglind Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Egill Freyr Ólafsson aðalmaður
  • Rakel Wium Ágústsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Þórunn Ólafsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
  • Stefanía Malen Stefánsdóttir grunnskólafulltrúi
Fundargerð ritaði: Þórunn Ólafsdóttir Verkefnastjóri á fjölskyldusviði

1.Starfamessa Austurlands 2026

Málsnúmer 202602235Vakta málsnúmer

Kynning á Starfamessu Austurlands sem haldin verður í september 2026.
Stefanía Malen Stefánsdóttir, grunnskólafulltrúi, kom á fundinn og sagði frá starfamessu sem fyrirhugað er að halda í Neskaupsstað í september. Messan er haldin í samstarfi við Fjarðabyggð. Sú breyting verður á fyrirkomulaginu að fjórum árgöngum verður boðið, tveimur efstu úr grunnskólum og tveimur árgöngum úr framhaldsskóla. Ungmennaráð leggur til að þriðja árs nemum í framhaldsskólum verði einnig boðið að taka þátt.

Gestir

  • Stefanía Malen Stefánsdóttir

2.Ungmennaþing 2026

Málsnúmer 202601206Vakta málsnúmer

Framhald á skipulagningu ungmennaþings sem fer fram á Egilsstöðum 16. apríl 2026.
Ákveðið að vinna áfram með þemað ungt fólk og lýðræði. Þingið verður haldið í Valaskjálf og ungmennaráð felur verkefnastjóra að halda áfram með skipulagsvinnu.

3.Barnvænt sveitarfélag

Málsnúmer 202603227Vakta málsnúmer

Kynning á matstæki ungmennaráða sem UNICEF hyggst leggja fyrir ungmennaráð, starfsfólk og kjörna fulltrúa sveitarfélaga.
Ungmennaráð hvetur kjörna fulltrúa og starfsfólk til að svara könnuninni.

4.Skuggakosningar 2026

Málsnúmer 202603248Vakta málsnúmer

Tekin var ákvörðun um að ungmennaráð standi fyrir skuggakosningum í grunnskólum Múlaþings í aðdraganda sveitastjórnakosninga í maí. Verkefnastjóra falið að vinna að framkvæmd og skipulagningu í samráði við ungmennaráðið.

5.Rannís umsóknir, frístundir og forvarnir

Málsnúmer 202410215Vakta málsnúmer

Framhald á umræðum um ungmennaskipti á Egilsstöðum í apríl.

Fundi slitið - kl. 15:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?