Fara í efni

Ungmennaráð Múlaþings

48. fundur 06. maí 2026 kl. 15:30 - 17:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Ágúst Bragi Daðason aðalmaður
  • Aron Bergur Hjaltason aðalmaður
  • Agla Eik Frostadóttir aðalmaður
  • Rakel Wium Ágústsdóttir varamaður
  • Bríet Eva Ágústsdóttir aðalmaður
  • Egill Freyr Ólafsson aðalmaður
  • Ína Berglind Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Jóhann Smári Kjartansson aðalmaður
Starfsmenn
  • Þórunn Ólafsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Þórunn Ólafsdóttir Verkefnastjóri á fjölskyldusviði

1.Forvarnastefna Múlaþings

Málsnúmer 202603250Vakta málsnúmer

Forvarnastefna Múlaþings lögð fram til kynningar

2.Ungmennaþing 2026

Málsnúmer 202601206Vakta málsnúmer

Farið yfir framkvæmd ungmennaþings 2026 sem haldið var í Valaskjálf 16. apríl sl.
Ákveðið að fara yfir niðurstöður þingsins á næsta fundi ungmennaráðs og undirbúa kynningu fyrir sveitarstjórn. Auk þess mun ungmennaráð vinna að handbók um framkvæmd ungmennaþings sem gæti nýst nýju ungmennaráði við framkvæmd næsta þings.

3.Skuggakosningar 2026

Málsnúmer 202603248Vakta málsnúmer

Framkvæmd skuggakosninga 2026.
Ungmennaráð fagnar verkefninu #égkýs og framhaldsskólanemar í hópnum telja það hafa heppnast vel. Hefðu þó viljað fá heimsókn frá frambjóðendum fyrir kosningarnar, en slík heimsókn er á döfinni.

4.Rannís umsóknir, frístundir og forvarnir

Málsnúmer 202410215Vakta málsnúmer

Fulltrúar Ungmennaráðs sem tóku þátt í Erasmus-ungmennaskiptum á Egilsstöðum í apríl segja frá verkefninu.
Þátttakendur sögðu frá verkefninu og reynslu sinni af því. Seinni hluti þess fer svo fram í Finnlandi í ágúst og er undirbúningur fyrir þá ferð í gangi.
Þátttakendur eru sammála um að verkefnið hafi verið bæði gagnlegt og lærdómsríkt og ungmennaráð telur slíkt alþjóðastarf geta orðið fastan lið í starfi ungmennaráðs í framtíðinni.

5.Skýrsla verkefnastjóra

Málsnúmer 202601208Vakta málsnúmer

Önnur mál
Rætt um tímasetningu næsta fundar, sem ákveðið var að yrði staðfundur.

Fundi slitið - kl. 17:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?