Málsnúmer 202608136Vakta málsnúmer
Á fundi fjölskylduráðs 21. september 2026 var tekið fyrir erindi frá Berginu headspace um mögulegt samstarf og reglulega viðveru á Austurlandi með það að markmiði að efla aðgengi ungmenna að gjaldfrjálsri ráðgjöf og stuðningi.
Fjölskylduráð vísaði erindinu til ungmennaráðs Múlaþings til umsagnar og óskaði eftir sjónarmiðum ráðsins varðandi fyrirhugað samstarf og reglulega viðveru Bergsins headspace á Austurlandi.
Rut Sigurðardóttir, fulltrúi Bergsins headspace, mætir á fund ungmennaráðs til að kynna starfsemi Bergsins, gera nánari grein fyrir fyrirhuguðu samstarfi og svara fyrirspurnum ráðsins.