Fara í efni

Yfirlit frétta

Uppfært kl. 16.25 : Aurskriður á Seyðisfirði - hættuástand
17.12.20 Fréttir

Uppfært kl. 16.25 : Aurskriður á Seyðisfirði - hættuástand

Gert er ráð fyrir talsverðri úrkomu á Seyðisfirði áfram. Þeir íbúar sem eru að huga að eigum sínum á rýmingarsvæðinu er heimilt að sinna þeim verkum til klukkan hálf fimm líkt og í gær.
Uppfært kl. 13:20 Aurskriður á Seyðisfirði - hættustig - íbúum á rýmingarsvæði nú heimilað að huga a…
17.12.20 Fréttir

Uppfært kl. 13:20 Aurskriður á Seyðisfirði - hættustig - íbúum á rýmingarsvæði nú heimilað að huga að húsum sínum

Hættustig er áfram í gildi á Seyðisfirði og óvissustig á Austurlandi vegna skriðuhættu. Mikil rigning var á Seyðisfirði frá klukkan 17 í gær og ákefð úrkomu enn meiri um kvöldmatarleitið. Skriða féll í nýjum farvegi um klukkan 21 og fór hún milli tveggja húsa. Í morgun hljóp svo í Búðará. Veðurspá til morguns er óhagstæð og hefur appelsínugul úrkomuviðvörun Veðurstofu Íslands verið framlengd um sólarhring.
Ljósmynd úr safni Seyðisfjarðar.
17.12.20 Fréttir

Uppfært kl. 12.15 Aurskriður á Seyðisfirði - hættustig

Í ljósi aðstæðna mun íbúum á rýmingarsvæði nú heimilað að huga að húsum sínum og eigum í samræmi við verklag sem notað var í gær og gafst vel. Rétt er að gefa sig áður fram við vettvangsstjórn í húsi björgunarsveitarinnar Ísólfs og fá leiðbeiningar og fylgd inn á svæðið. Veðurspá fyrir Seyðisfjörð er þess eðlis að ekki þykir óhætt að aflétta rýmingu að öðru leyti eða hættustigi. Næstu tilkynningar frá aðgerðastjórn er að vænta um klukkan þrjú í dag.
Aurskriður á Seyðisfirði og covid 19
17.12.20 Fréttir

Aurskriður á Seyðisfirði og covid 19

Í ljósi atburða á Seyðisfirði beinir aðgerðastjórn tilmælum til þeirra sem þurfa starfs sín vegna eða af öðrum nauðsynlegum ástæðum, um að gæta að sér í hvívetna, huga að grímunotkun, tveggja metra fjarlægð, handþvotti og sprittnotkun.
Mynd fengin hjá lögreglunni.
17.12.20 Fréttir

Aurskriður á Seyðisfirði - hættustig

Um hálf tíuleytið í gærkvöldi kom lítil aurspýja niður á milli tveggja rýmdra húsa í lækjarfarvegi við Botnahlíð á Seyðisfirði. Hún hélst í farveginum að götunni en náði inn á og yfir götuna. Ekkert tjón sjáanlegt. Veðurspá gerir ráð fyrir aukinni úrkomu á Austurlandi með morgninum. Af þeim sökum telst ekki óhætt að fara inn á rýmingarsvæðið að sinni. Næstu tilkynningar er að vænta um klukkan hálf ellefu í birtingu. Frekari upplýsinga má og finna hjá vettvangsstjórn aðgerða í húsi björgunarsveitarinnar Ísólfs frá klukkan átta.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir grunnskóla og leikskóla við Einhleyping í Fellabæ
17.12.20 Fréttir

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir grunnskóla og leikskóla við Einhleyping í Fellabæ

Sveitarstjórn Múlaþings auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir grunnskóla og leikskóla í Fellabæ, skv. 1.mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem felur í sér svæði fyrir leikskóla vestan við Fellaskóla, færslu á mörkum skipulagssvæðisins til að rúma svæði fyrir leikskólann. Auknar heimildir eru fyrir viðbyggingu við grunnskólann, gerðar breytingar á skilmálum í greinargerð og bætt inn kafla um leikskólann. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Múlaþings, Lyngási 12 Egilsstöðum frá og með fimmtudeginum 17. desember nk. til mánudagsins 1. febrúar 2021. Tillagan er einnig til sýnis á heimasíðu Múlaþings á sama tíma.
Ljósmynd : Eva Jónudóttir
16.12.20 Fréttir

Aurskriður á Seyðisfirði - hættustig - rýming

Talsverð úrkoma er nú á Seyðisfirði og gert ráð fyrir að það ástand vari í nótt. Því er ekki talið óhætt að fara inn á rýmingarsvæðið í bítið líkt og heimilað var í morgun. Staðan verður endurmetin klukkan hálf ellefu í fyrramálið. Næstu tilkynningar er því að vænta um klukkan hálf tólf á morgun. Frekari upplýsingar má finna hjá vettvangsstjórn aðgerða í húsi björgunarsveitarinnar Ísólfs frá klukkan átta í fyrramálið.
Ljósmynd : Unnar Jósepsson.
16.12.20 Fréttir

Aurskriður á Seyðisfirði - tryggingar

Allar húseignir eru vátryggðar gegn beinu tjóni af völdum skriðufalla og einnig innbú og lausafé, ef það er brunatryggt. Skilgreining á skriðufalli er “þegar skriða úr fjalli eða hlíð fellur skyndilega á vátryggðar eignir með þeim afleiðingum að þær skemmast eða eyðileggjast”. Aurflóðin sem urðu á Seyðisfirði í gær 2020, teljast því til náttúruhamfara samkvæmt lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands.
Aurskriður á Seyðisfirði - hættustig - úrkomuspá
16.12.20 Fréttir

Aurskriður á Seyðisfirði - hættustig - úrkomuspá

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu má gera ráð fyrir talsverðri úrkomu frá klukkan 17 í dag á Austfjörðum og stendur fram á kvöld. Þá dregur aðeins úr henni fram til klukkan 17 á morgun þegar bætir í úrkomu að nýju. Appelsínugul úrkomuviðvörun Veðurstofu mun í gildi til klukkan níu í fyrramálið frá klukkan 17 í dag. Staðan þá endurskoðuð.
Aurskriður á Seyðisfirði - rýming húsa - hættustig
16.12.20 Fréttir

Aurskriður á Seyðisfirði - rýming húsa - hættustig

Samkvæmt veðurspá dagsins verður úrkomulítið á Seyðisfirði í dag en bætir svo í með kvöldinu og talsverðri rigningu spáð á morgun. Þeir íbúar sem hug hafa á að sækja nauðsynjar í hús sín á rýmingarsvæði, kanna ástand og eftir atvikum gera ráðstafanir, eru hvattir til að gefa sig fram við vettvangsstjórn í húsi björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði. Þar verða frekari upplýsingar veittar og aðstoð við að fara inn á rýmingarsvæðið.
Getum við bætt efni þessarar síðu?