31.03.2021
kl. 14:04
Áður auglýstri fundaröð frestað vegna samkomutakmarkana, sjá nýja dagskrá
Lesa
29.03.2021
kl. 09:28
Tilkynning síðan í gær, sunnudag 28. mars.
Fimm eru enn í einangrun á Austurlandi vegna landamærasmita. Einn tíu smitaðra skipverja um borð í súrálsskipi við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði var síðdegis í dag fluttur með sjúkraflugi á Landspítala. Tilefni flutningsins var viss versnun einkenna á þann hátt að samkvæmt áður gerðri áætlun þótti rétt að flytja hann til öryggis á sjúkrahús. Ástand annarra smitaðra um borð telst stöðugt.
Lesa
29.03.2021
kl. 08:21
Íbúafundur fyrir Seyðfirðinga
Haldinn á Facebook þann 30. mars 2021 klukkan 17:00
Tilgangur fundarins er að upplýsa íbúa Seyðisfjarðar um stöðu mála. Fundurinn fer fram í gegnum Facebooksíðu Múlaþings
Íbúar geta sent inn spurningar fyrir fundinn á netfangið mulathing@mulathing.is
Lesa
26.03.2021
kl. 13:02
Frá og með deginum í dag, 26. mars 2021, lokar símanúmer og netfang þjónustumiðstöðvar Almannavarna sem var í Herðubreið. Ef fólk þarfnast upplýsinga vegna hamfaranna á Seyðisfirði í desember 2020 eða er með spurningar er bent á símanúmer Múlaþings, 4-700-700.
Lesa
26.03.2021
kl. 08:11
Í stuttu máli erum við komin á fornar slóðir fyrri bylgna faraldursins með þeim ströngu reglum er þá giltu. Helstu breytingarnar lúta að óformlegum leiðbeiningum sóttvarnaryfirvalda varðandi ferðalög. Þó ekki sé beinlínis hvatt til þeirra utanhúss að þessu sinni þá er áherslan ekki heldur á ferðalag innanhúss líkt og var um síðustu páska. Þess í stað er lagt fyrir fífldjarfa ferðalanga sem hyggjast leggja í hann að fara þá ofurvarlega á ókunnum lendum. Í því felst að halda sínum ranni þétt að sér og öðrum frá, sem og að gæta að persónubundnum sóttvörnum; tveggja metra reglu, grímunotkun, handþvotti og sprittun snertiflata.
Lesa
25.03.2021
kl. 10:57
Því miður þarf að skella í lás í öllum íþróttamiðstöðvum og sundlaugum Múlaþings frá og með deginum í dag, 25. mars.
Þetta er mjög miður enda páskarnir framundan og aukinn opnunartími og mikið stuð planað. En það þarf að taka því rólega í þrjár vikur og Múlaþing vonast svo til að geta boðið gesti velkomna að þeim tíma liðnum.
Lesa
24.03.2021
kl. 21:04
Áhrif hertra sóttvarna á leik- grunn- og tónlistarskóla í Múlaþingi
Lesa
24.03.2021
kl. 19:53
Tíu COVID smit eru á Austurlandi, öll í skipi við bryggju á Reyðarfirði í Mjóeyrarhöfn. Aðgerðastjórn metur ekki yfirvofandi hættu af dreifingu smita frá skipinu.
Lesa
24.03.2021
kl. 14:11
Vakin er athygli á fjölmörgum og spennandi störfum í Múlaþingi. Múlaþing er nýtt sveitarfélag á Austurlandi með rúmlega 5000 íbúum. Nánar má lesa um störfin hér.
Lesa
23.03.2021
kl. 11:14
Stefnt er að því að halda íbúafund vegna Seyðisfjarðar þriðjudaginn 30. mars næst komandi klukkan 17:00.
Fundurinn fer fram með sama hætti og fyrri fundir, það er fundinum verður streymt á heimasíðu Múlaþings og á facebook-síðu sveitarfélagsins.
Dagskrá verður kynnt er nær dregur.
Lesa