Byggðarráð Múlaþings auglýsir til umsóknar styrki til menningarstarfs á árinu 2027. Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2026. Styrkir eru að upphæð 50.000 - 500.000 kr.
ATH: Aðeins verður úthlutað einu sinni á árinu 2027.
Múlaþing veitir menningarstyrki til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til lista- og menningarverkefna. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarlíf í sveitarfélaginu.
Sótt er um með rafrænum hætti á Mínum síðum sveitarfélagsins og mun afgreiðsla umsókna liggja fyrir í lok janúar 2027.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun menningarstyrkja og aðrar upplýsingar um menningarstyrki áður en umsókn er send.
Upplýsingar og ráðgjöf veitir Elsa Guðný Björgvinsdóttir deildarstjóri menningarmála: elsa.bjorgvinsdottir@mulathing.is / 4700 700.
Viðvera í kjörnum
Deildarstjóri menningarmála verður með viðveru á Djúpavogi, Seyðisfirði og Borgarfirði í aðdraganda úthlutunar sem hér segir (með fyrirvara um breytingar):
- Djúpivogur: 4. desember
- Borgarfjörður: 7. desember
- Seyðisfjörður: 9. desember
Hægt er að líta við á opnunartíma viðkomandi starfsstöðvar. Ef sá tími hentar ekki er hægt að senda póst á elsa.bjorgvinsdottir@mulathing.is og finna betri tíma. Einnig er hægt að bóka tíma á Egilsstöðum.