Afhending Íslensku menntaverðlaunanna fór fram við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær en athöfnin verður sýnd á RÚV í kvöld klukkan 20:15. Þar verða veitt verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf, verkefni og kennslu.
Múlaþing á glæsilegan fulltrúa meðal þeirra sem tilnefndir eru til verðlaunanna en Jónína Lovísa Kristjánsdóttir, kennari við Egilsstaðaskóla og kennsluráðgjafi hjá skóla- og frístundaþjónustu Múlaþings, er tilnefnd í flokki framúrskarandi kennslu.
Mikil eftirvænting er fyrir útsendingunni og eru íbúar hvattir til að fylgjast með í kvöld.
Jónínu Lovísu er óskað góðs gengis.